GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 6 OF 31

Þegar gleði er hluti af lífi þínu mun hún auka við vitnisburðinn þinn! Þegar gleði kemur aftur inn í líf þitt muntu hafa kraft til að koma af stað breytingu á meðan þú gengur um á þessari jörð. Syndarar munu hlusta á þig af því að þú hefur gleði. Misgjörðarmenn munu hafa áhuga á því sem þú hefur að segja þegar þú ljómar af gleði sem aðeins hjálpræði getur gefið.

Er það ekki það við viljum öll? Við viljum koma af stað breytingu á lífstíð okkar. Við viljum að líf okkar hafi verið meira virði en bandstrik á legsteininum okkar. Við viljum skilja eftir arfleifð lífa sem hafa breyst vegna þess að þau urðu á vegi okkar í lífinu. Gleði mun gera þér kleift að koma af stað breytingu í lífi einhvers annars.

Gleði mun styrkja vitnisburð þinn og þú munt geta breytt lífi einhvers annars. Ef þú hélst að gleði hafi veirð fundin upp bara fyrir þig þarftu að breyta hugsunarhætti þínum! Guð þarf kynslóð fylltar gleði sem er tilbúin að hafa stórkostleg áhrif á heiminn sem við búum í. Ég er til ... hvað með þig?!
Dag 5Dag 7

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com