GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 10 OF 31

Gleði Drottins er í raun styrkur þinn og djöfullinn veit að ef hann getur rænt þig styrknum þínum þá verður þú veikburða veinandi og árangurslaus kristinn einstaklingur.

Vissirðu að djöfullinn sækist ekki eftir heilsunni þinni? Gerðirðu þér grein fyrir því að Satan gæti ekki verið meira sama um hjónabandið þitt eða fjármálin þín? Og börnin þín skipta djöfulinn engu máli! Það sem djöfullinn sækist eftir er gleðin þín og hann reynir að stela gleði þinni með því að ráðast á heilsuna þína, hjónabandið þitt, fjármálin og börnin þín.

Djöfullinn veit að hann getur ekki tekið frá þér fyrirgefninguna og lausnina sem Jesús hefur gefið þér. Í staðinn reynir hann að stela því verðmætasta frá þér sem hann getur komið gráðugum höndum sínum yfir. Satan mun þrálátt reyna að ljúga að þér og reyna að taka gleðina frá þér.

Leyf mér að skora á þig í dag að standa andspænis ákæranda bræðranna og lýsa því yfir framan í litla ljóta andlitið á honum, ,,Satan....þú getur ekki!! Þú munt ekki!! Þú munt aldrei geta tekið gleðina mína frá mér!"

Þegar þú velur að bjóða óvininum birginn með gleðinni sem Jesús dó til að gefa þér muntu verða kraftmikið afl í heiminum í dag. Guð getur notað glaða kristna einstaklinga sem eru nægilega hugrökk til að halda í gleðina þeirra alveg sama hvað bjátar á.
Dag 9Dag 11

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com