GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 14 OF 31

Jósafat var einn af góðu "gæjunum" af hans kynslóð. Hann vann að umbótum í konungsríkinu og kvað á um réttlæti. Sem guðsmaður hvatti Jósafat fólkið undir hans stjórn til að óttast og þjóna Guði af öllu hjarta. H-m-m-m... ég vildi óska að við fyndum leiðtoga af þessu tagi í dag!

Jósafat gerði það rétta og lifði heiðarlegu lífi þegar BÚMM! Hann var blindaður af óvininum sem kom inn í landið og hóf stríð í friðsæla konungsríkinu. Hvernig dirfast þeir!

Hvernig dirfast óvinir þínir! Við eigum öll við ógnvekjandi óvini að stríða og getum lært ýmislegt af Jósafat, unga konuningum. Jósafat sneri athygli sinni að því að leita Drottins. Hann sóaði engum tíma í áhyggjur eða að kenna Guði um. Jósafat var staðráðinn í að augu hans yrðu fest á Drottinn sama hvaða óvinur kom í átt að landamærum Júda.

Ef þú vilt vinna baráttuna um gleði mundu að beina augliti þínu að Drottni. Ekki sóa tíma í áhyggjur eða kvíða. Þú munt finna í hjartanu að Drottinn mun fá óskipta athygli þína sama hvað er að gerast í kringum þig.

Þegar við erum í stríði eigum við það oft til að tala bara um bardagann... krabbameinið... skort á fjármunum... ósvífnin í tengdamömmu... uppreisn barns. Talaðu við Guð þegar þú stendur í stríði. Veldu þér ritningarvers og stattu á því!
Dag 13Dag 15

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com