GleðistraumurSýnishorn
Fólkið í Júda voru við það að verða fyrir árás óvægins og ógnvekjandi óvinar. Þau höfðu safnast saman í húsi Guðs til að biðja og leita hjálpar frá Drottni. Með öndina í hálsinu af eftirvæntingu beið öll þjóðin eftir orði frá Guði. Myndi þeim verða slátrað? Yrðu heimili þeirra rænd og síðan brennd? Myndu dætrum þeirra og eiginkonum vera nauðgað?
Allt í einu kom andi Guðs yfir Jehasíel son Asafs. Jehasíel var lofgjörðarleiðtogi! Í sex kynslóðir hafði fjölskylda hans leitt lofgjörð og á þessum krossgötum í sögunni talaði Guð við Jehasíel, ,,Óttist ekki! Guð sér um þetta! Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur því Guð mun berjast fyrir ykkur! Þið þurfið bara að trúa!"
Þessi sömu orð bergmála í gegnum aldirnar af vörum Jahasíel til hjarta þíns. Guð er með þér í dag og hann mun berjast fyrir þig. Sami Guð og opnaði Rauðahafið stendur með þér! Sá Guð sem drap Golíat með hendi Davíðs mun berjast fyrir þig! Sami Guð og lokaði ginum ljónanna fyrir Daníel er við stjórnvölin í lífi þínu.
Og hvað gerði Jósafat konungur þá? Hann féll niður frammi fyrir augliti Drottins og tilbað hann. Það hljómar eins og gott ráð fyrir mér...hvað finnst þér? Þegar þú stendur frammi fyrir óvini sem stefnir beint á þig gætir þú viljað gera það sem þessi jarðneski konungur gerði...hann féll fram með andlitið að jörðinni, frammi fyrir Drottni sínum, og tilbað hann. Ef það var nógu gott fyrir Jósafat...þá er það líka nógu gott fyrir þig. Þetta hefur ekkert með það að gera hvort þú ert baptisti eða hvítasunnumaður....lútherskrar trúar eða andlega þenkjandi...úr biskupakirkju eða meþódisti! Ég ætla að verja hverjum degi lífs míns með andlitið að jörðinni í hjartans tilbeiðslu. Það er staða krafts og sigurs! Það er herkænskustaða fyrir þau sem eru í lenda í baráttu sem er stærri en þau sjálf en vita samt að þau eru sköpuð til þessa að yfirstíga allar þær hindranir sem settar eru í veg þeirra.
Hvað gerði Jósafat að lokum? Hann stóð upp og lofaði Drottinn með hárri röddu. Ég er að hlusta...ertu viljug/ur til að tilbiðja Guð með Jósafat? Leifið lofgjörðinni að hljóma....við erum um það bil að sigra!

Ritningin
About this Plan
Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.
More
Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com