GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 21 OF 31

En undarleg skilaboð skrifuð af manni í fangelsi! "Gleðjist ávallt í Drottni! Ég segi aftur gleðjist!"

Þetta eru ráð Páls lýst yfir úr rómversku fyrstu aldar fangaklefa beint inn í tuttugustuogfyrtsu aldar hjarta þitt: Þitt innra viðhorf þurfa ekki að endurspegla þínar ytri aðstæður!

Páll sagði það tvisvar svo ég held að ég geri það líka! "Þitt innra viðhorf þurfa ekki að endurspegla þínar ytri aðstæður!"

Það er svo auðvelt að fyllast vonleysi yfir ónotalegum kringsumstæðum eða láta freistast til að taka ómerkilegum atburðum of alvarlega. Það munu alltaf vera aðstæður í lífinu sem munu gera þig óhamingjusama/n eða afkastalitla/lítinn eða jafnvel tilfinninga veika/n. En það ætti aldrei að vera atburður í lífi þínu sem veldur því að þú hættir að gleðjast! Það ætti aldrei að vera þáttur eða viðburðu í lífinu sem stelur gleðinni þinni.

Það er bara hægt þegar þú gleðst "í Drottni". Það er ekki hægt í mennsku okkar en það er svo sannarlega hægt í Drottni!

Gleði þín er árangur lóðrétts viðhorfs þegar þú horfir beint upp í ásjúnu Guðs sjálfs! Ef þú hefur lárétt viðhorf til lífsins, eins langt og augað eygir muntu aðeins sjá þurra og snauða tilveru. En ef þú getur valið að líta upp til Föðursins muntu verða hugfangin/n af ást hans ... friði hans ... og góðvild hans.!

Ef þú ákveður í dag að lifa lóðréttu lífi fremur en láréttri tilveru muntu ekki hafa tíma til að kvarta af því að þú munt vera svo upptekin/n af gleðinni sem fylgir nærveru hans. Vonbrigði munu ekki lengur trufla þig af því að þú munt vera sokkin/n í lífstíl lofgjörðar. Orðið "þunglyndi" mun vera þurrkað út úr orðabókinni þinni og þú munt geta dansað inn í framtíð þína!
Dag 20Dag 22

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com