GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 26 OF 31

Biblían, frá fyrstu Mósebók til Opinberunarbókarinnar, er full af skoðunum Guðs á mikilvægi þess að liva réttlátu lífi. Ég er ekki að tala um bókstafshlýðni eða ánauð. Réttsýni er hugmynd Guðs að frelsi og lífinu í sinni bestu mynd!

Réttsýni er einfaldlega að lifa lífinu undirgefin/n áætlunum Guðs. Það gæti þýtt að þú þurfir að losa þig við málamiðlanir eða annars flokks ákvarðanir. Það gæti þýtt að þú þurfir að breyta því hvernig þú talar eða hvernig þú verð tíma þínum.

Gerðu vörutalningu á lífi þínu í dag og biddu Guð að sýna þér þá hluti sem þurfa að breytast í lífi þínu. ekki gera lítið úr því ef sú hugsun kemur upp að þú hefur verið óþolinmóð/ur við maka þinn nýlega. Hún kemur líklega frá Guði og hann er að sýna þér svið í lífi þínu sem þarfnast breytingar.

Kannski, eftir að hafa beðið Guð um að sýna þér svið í lífi þínu sem þurfa að breytast hugsaru kannski með þér að þú hafir eytt of miklum pening undanfarið. Eða þú hugsar kannski hvort þú hafir eytt of miklum tíma í tölvunni. Ekki kasta þessum hugsunum frá þér. Þetta gæti verið Guð að hjálpa þér að hreinsa til í lífi þínu svo þú getir lifað lífi fylltu gleði í dag!
Dag 25Dag 27

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com