GleðistraumurSýnishorn

A Jolt of Joy

DAY 28 OF 31

Vissirðu að þér hefur þegar verið gefið allt sem þú gætir nokkurn tíman þurft á að halda til að lifa lífi smitandi gleði? Guð, faðirinn, í gegnum soninn Jesú hefur þegar séð fyrir öllum nauðsynjum til að lifa guðræknu lífi! Og af því að gleði er eiginleiki karakter Guðs felur hún í sér útsprungna kraftmikla gleði!

Þú hefur þegar allt sem þú þarft til að eiga við fyrirtíðaspennu, þunglyndi, tilhneyginguna til að dæma, óþolinmæði og fyrri bresti þegar þú hefur Jesú Krist. Guð sem er gjafmildari en nokkur söguleg persóna nokkurs tímabils hefur þegar gefið okkur gjörsamlega allt sem við þurfum til að lifa gleðifylltu lífi.

Það er dýrmætt loforð að við fáum að vera hluttakendur í guðdómlegum einkennum. Við erum ekki jarðnesk fölsun heldur fáum við að líta út, haga okkur, tala, ganga og tjá tilfinningar alveg eins og Jesú gerði þegar hann var á jörðinni. Guðdómleg einkenni Guðs getur verið skipt út fyrir veikleika okkar á öllum sviðum lífs okkar ef við bara leyfum honum það. Þegar við göngum og lifum í andanum erum við í raun og veru að fara í öfuga átt við okkar eðlislægu tilhneygingar og genatíska móttækileika.

Þegar þú nýtir þessi vers í lífi þínu muntu vera besta mögulega útgáfan að sjálfri/sjálfum þér. Mun það krefjast mikillar vinnu? Já! Það krefst innilegrar ástundunar, en Guð sjálfur mun styrkja þig og hvetja þig áfram í því sem þú líkist honum meir á hverjum degi lífs þíns!
Dag 27Dag 29

About this Plan

A Jolt of Joy

Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.

More

Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com