GleðistraumurSýnishorn
Þegar þú hleypir Jesú inn í hjarta þitt sem lausnara og frelsara þinn opnast fyrir þér nýr heimur af áður óupplifaðri gleði! Guð vissi að lífið á jörðinni myndi ekki vera fullkomið og að við myndum ganga í gegnum erfiðleika, sorg og vonbrigði á meðan við værum hér. Til að komast í gegnum daga sem sárskaukinn getur á tíðum verið yfirþyrmandi gaf hann okkur gjöf gleðinnar til að lyfta okkur upp úr jarðbundum kringumstæðum! Gleðin gefur okkur örlítið bragð af himnum sem er send frá Jesú til þeirra sem þekkja hann sem lausnara sinn og frelsara. Gleði er hæfnin til að upplifa í okkar jarðneska eðli blessanirnar sem Drottinn nýtur í heilagleika sínum.
Gleði er traust, staðfest afleiðing þess að eiga í nánu sambandi við konung konunganna.
Þegar þú vísvitandi tekur ákvörðun um að vera félagi Jesú og beygir þig undir vald hans þá ertu að taka ákvörðun um að taka við gleði hans inn í líf þitt. Gleði er ekki háð stöðu þinni í þjóðfélaginu, hversu sterk sambönd þín eru við annað fólk eða hvar þú býrð, en hún er háð því að þú veljir Hann þegar lífið setur hindranir á veg þinn. Þegar þú velur að gefa Jesú Kristi líf þitt velur gleðin þig!

Ritningin
About this Plan
Biblían segir okkur að ,,gleðignótt er fyrir augliti þínu" og að ,,gleði Drottins er hlífiskjöldur okkar." Gleði er ekki bara hver önnur tilfinning; hún er ávöxtur andans og eitt besta vopnið til að takast á við vonleysi, þunglyndi og uppgjöf. Verðu 31. degi í að læra hvað Biblían segir um gleði og styrktu þig sjálfa/n til að verða glaður kristinn einstaklingur sama hvernig kringumstæður þínar eru.
More
Við viljum þakka Carol McLeod fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á www.justjoyministries.com