Í okkar stað: Hugleiðingar á páskaföstu frá "Time of Grace"Sýnishorn

In Our Place: Lenten Devotions

DAY 13 OF 14

Stóri samningurinn.

Pýramídarnir stórfenglegu í Egyptalandi voru byggðir sem grafhýsi fyrir faraóana: lík Djoser, Khufu, og Khafra voru varlega vafin í múmíu form og lögð til hvílu þar. Í dag eru þessi grafhýsi tóm. Jesús Kristur var tekinn af lífi eins og versti glæpamaður, en hann var lagður til hvílu eins og prins í nýrri gröf sem höggvin hafði verið í klett. Gröf hans er einnig tóm en af gerólíkum ástæðum. Grafræningjar tæmdu grafir faraóanna. Jesús gekk lifandi út úr sinni gröf.

Við gætum búist við því að vantrúaðir taki sögu Páskanna ekki trúanlega. Það gæti hins vegar komið á óvart hversu margir kristnir fræðimenn eru uppteknir við það að breiða út hugmyndinni að upprisa Jesú hafi snúist um eitthvað allt annað en raunverulega, líkamlega upprisu Jesú. Frelsarinn okkar var raunverulega dáinn. Hann var ekki með neinn púls. Hann andaði ekki. Hann var ekki með neina heilavirkni. Frelsarinn okkar er hins vegar raunverulega á lífi í dag.

Þetta er mikið mál. Líkamleg upprisa Jesú er opinber viðurkenning Guð föðurs á lífsverki sonar síns. ,,Ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun okkar, ónýt líka trú ykkar.” (Fyrra Korintubréf 15:14). Ef líkami Krists er ennþá dáinn þá erum við ennþá föst í synd. Sektarkennd okkar hefur ekki verið fjarlægð. Líkami þinn mun aldrei fara úr gröfinni.

En Jesús er upprisinn og með því von okkar. Í trúarjátningunni segjum við ,,Ég trúi á upprisu holdsins.” Trúir þú því í raun? Þeir sem trúa öðlast fyrirgefningu og fyrirheit um eilíft líf.
Dag 12Dag 14

About this Plan

In Our Place: Lenten Devotions

Þessi lestraráætlun mun leiða þig í gegnum Páskaföstuna og inniheldur ótrúlegar sögur um þjáningu, fordæmingu og dauða Jesú í okkar stað.

More

Við viljum þakka Time of Grace starfinu fyrir að opna aðgang að þessari lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á: www.timeofgrace.org