Að upplifa endurnýjun GuðsSýnishorn
Guð hefur tilgang fyrir sérhvert okkar. Sum okkar vita hver tilgangur Guðs er en aðrir eru ennþá að leita að þeim tilgangi. Þegar við erum meðvituð um tilgang okkar þá notar Guð okkur til þess að endurnýja konungsríki sitt hér á jörðunni, en til þess að við getum endurnýjað konungsríki hans þá þurfum við í sífellu að endurnýja tilgang okkar og okkur sjálf. Ekki láta þann tilgang sem Guð hefur fyrir líf þitt verða úr sér gengin eða þreyttan. Leyfðu Guði að endurnýja tilgang sinn í lífi þínu á þann hátt að hann virki eins ferskur og nýr og þegar þú uppgötvaðir guðlegan tilgang þinn í fyrsta sinn. Biddu hann að þroska tilgang þinn og að sýna þér á hvaða hátt hæfileikar þínir geta verið best nýttir til að endurnýja konungsríki hans á sama hátt og hann endurnýjar líf þitt og tilgang.
Ritningin
About this Plan
Það að vera ný sköpun í Kristi þýðir að við erum í stöðugri endurnýjun í honum. Guð endurnýjar hjarta okkar, huga og líkama. Hann endurnýjar einnig tilgang okkar. Í þessari 5 daga lestraráætlun þá munt þú kafa dýpra í það sem orð Guðs segir um endurnýjun. Á hverjum degi verður þér úthlutað ákveðnum Biblíuversum til þess að lesa, og gefin stutt hugleiðing til að hjálpa þér að íhuga ólíkar leiðir til að upplifa endurnýjun Guðs í þínu lífi. Ef þú vilt fá meira að lesa um þetta málefni farðu á finds.life.church
More
We would like to thank Life.Church for providing this plan. For more information, please visit: www.life.church