YouVersion लोगो
खोज आइकन

Matteusarguðspjall 13

13
Sáðmaðurinn gekk út að sá
1Sama dag gekk Jesús að heiman og settist við vatnið. 2Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum að hann varð að stíga í bát og sitja þar. En allt fólkið stóð á ströndinni. 3Jesús talaði margt til þess í dæmisögum.
Hann sagði: „Sáðmaður gekk út að sá 4og þá er hann sáði féll sumt hjá götunni og fuglar komu og átu það upp. 5Sumt féll í grýtta jörð þar sem var lítill jarðvegur og það rann skjótt upp því það hafði ekki djúpa jörð. 6Þegar sól hækkaði visnaði það og sökum þess að það hafði ekki rótfestu skrælnaði það. 7Sumt féll meðal þyrna og þyrnarnir uxu og kæfðu það. 8En sumt féll í góða jörð og bar ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextugfaldan og sumt þrítugfaldan.
9Hver sem eyru hefur hann heyri.“
Hvers vegna í dæmisögum?
10Þá komu lærisveinarnir til hans og spurðu: „Hvers vegna talar þú til fólksins í dæmisögum?“
11Hann svaraði: „Ykkur er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, öðrum er það ekki gefið. 12Því að þeim sem hefur mun gefið verða og hann mun hafa gnægð en frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur. 13Þess vegna tala ég til þeirra í dæmisögum að sjáandi sjá þau ekki og heyrandi heyra þau ekki né skilja. 14Á þeim rætist spádómur Jesaja:
Með eyrum munuð þér heyra og alls ekki skilja
og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.
15Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið
og illa heyra þeir með eyrum sínum
og augunum hafa þeir lokað,
svo að þeir sjái ekki með augunum
né heyri með eyrunum
og skilji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.
16En sæl eru augu ykkar af því að þau sjá og eyru ykkar af því að þau heyra. 17Sannlega segi ég ykkur: Margir spámenn og réttlátir menn þráðu að sjá það sem þið sjáið en sáu það ekki og heyra það sem þið heyrið en heyrðu það ekki.
Merking dæmisögunnar
18Heyrið þá hvað dæmisagan um sáðmanninn merkir: 19Þegar einhver heyrir orðið um ríkið og skilur ekki þá kemur hinn vondi og rænir því sem sáð var í hjarta hans. Það sem sáð var við götuna merkir þetta. 20Það sem sáð var í grýtta jörð merkir þann sem tekur orðinu með fögnuði um leið og hann heyrir það 21en hefur enga rótfestu. Hann er hvikull og er þrenging verður eða ofsókn vegna orðsins bregst hann þegar. 22Það er sáð var meðal þyrna merkir þann sem heyrir orðið en áhyggjur heimsins og tál auðæfanna kefja orðið svo það ber engan ávöxt. 23En það er sáð var í góða jörð merkir þann sem heyrir orðið og skilur það. Hann er sá sem ber ávöxt og gefur af sér hundraðfalt, sextugfalt eða þrítugfalt.“
Illgresi sáð
24Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er um himnaríki og mann er sáði góðu sæði í akur sinn. 25En er menn voru í svefni kom óvinur hans, sáði illgresi meðal hveitisins og fór síðan. 26Þegar sæðið spratt upp og tók að bera ávöxt kom illgresið og í ljós. 27Þá komu þjónar húsbóndans til hans og sögðu við hann: Herra, sáðir þú ekki góðu sæði í akur þinn? Hvaðan kemur illgresið? 28Hann svaraði þeim: Þetta hefur einhver óvinur gert. Þjónarnir sögðu við hann: Viltu að við förum og reytum það? 29Hann sagði: Nei, með því að tína illgresið gætuð þið slitið upp hveitið um leið. 30Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði. Þegar komin er kornskurðartíð mun ég segja við kornskurðarmenn: Safnið fyrst illgresinu og bindið í bundin til að brenna því en hirðið hveitið í hlöðu mína.“
Líkt mustarðskorni
31Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki mustarðskorni sem maður tók og sáði í akur sinn. 32Smæst er það allra sáðkorna en nær það vex er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess.“
Líkt súrdeigi
33Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki súrdeigi er kona tók og fól í þrem mælum mjöls uns það sýrðist allt.“
34Þetta allt talaði Jesús í dæmisögum til fólksins og án dæmisagna talaði hann ekki til þess. 35Það átti að rætast sem Guð lét spámanninn segja:
Ég mun tala í dæmisögum
og boða það sem hulið var frá sköpun heims.
Jesús skýrir
36Þá skildi Jesús við mannfjöldann og fór inn. Lærisveinar hans komu til hans og sögðu: „Skýrðu fyrir okkur dæmisöguna um illgresið á akrinum.“
37Hann mælti: „Sá er sáir góða sæðinu er Mannssonurinn, 38akurinn er heimurinn, góða sæðið merkir börn ríkisins en illgresið börn hins vonda. 39Óvinurinn, sem sáði því, er djöfullinn. Kornskurðurinn er endir veraldar og kornskurðarmennirnir englar. 40Eins og illgresinu er safnað og brennt í eldi, þannig verður við endi veraldar. 41Mannssonurinn mun senda engla sína og þeir munu nema brott úr ríki hans allt sem leiðir í villu og alla er illt fremja 42og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna. 43Þá munu þau sem hlýtt hafa Guði skína sem sól í ríki föður þeirra.
Hver sem eyru hefur hann heyri.“
Líkt fjársjóði, perlu, neti
44Enn sagði Jesús: „Líkt er himnaríki fjársjóði sem fólginn var í jörðu og maður fann og leyndi. Í fögnuði sínum fór hann, seldi allar eigur sínar og keypti akur þann.
45Enn er himnaríki líkt kaupmanni sem leitaði að fögrum perlum. 46Og er hann fann eina dýrmæta perlu fór hann, seldi allt sem hann átti og keypti hana.
47Enn er himnaríki líkt neti sem lagt er í sjó og safnar alls kyns fiski. 48Þegar það er fullt draga menn það á land, setjast við og safna þeim góðu í ker en kasta þeim óætu burt. 49Svo mun verða þegar veröld endar: Englarnir munu koma, skilja vonda menn frá réttlátum 50og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna.
51Hafið þið skilið allt þetta?“
„Já,“ svöruðu lærisveinarnir.
52Jesús sagði við þá: „Þannig er sérhver fræðimaður sem orðinn er lærisveinn himnaríkis líkur húsföður sem ber fram nýtt og gamalt úr forðabúri sínu.“
Í Nasaret
53Þegar Jesús hafði lokið þessum dæmisögum hélt hann þaðan. 54Hann kom í ættborg sína og tók að kenna þeim í samkundu þeirra. Þeir undruðust stórum og sögðu: „Hvaðan kemur honum þessi speki og kraftaverkin? 55Er þetta ekki sonur smiðsins? Heitir ekki móðir hans María og bræður hans Jakob, Jósef, Símon og Júdas? 56Og eru ekki systur hans allar hjá okkur? Hvaðan kemur honum þá allt þetta?“ 57Og þeir höfnuðu honum hneykslaðir.
En Jesús sagði við þá: „Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu og með heimamönnum.“ 58Og hann gerði þar ekki mörg kraftaverk sökum vantrúar þeirra.

अहिले सेलेक्ट गरिएको:

Matteusarguðspjall 13: BIBLIAN07

हाइलाइट

शेयर गर्नुहोस्

कपी गर्नुहोस्

None

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्