YouVersion लोगो
खोज आइकन

Matteusarguðspjall 12

12
Drottinn hvíldardagsins
1Um þessar mundir fór Jesús um sáðlönd á hvíldardegi. Lærisveinar hans kenndu hungurs og tóku að tína kornöx og eta. 2Þegar farísear sáu það sögðu þeir við hann: „Lít á, lærisveinar þínir gera það sem ekki er leyft að gera á hvíldardegi.“
3Jesús svaraði þeim: „Hafið þið ekki lesið hvað Davíð gerði þegar hann hungraði og menn hans? 4Hann fór inn í Guðs hús og þeir átu skoðunarbrauðin sem hvorki hann né menn hans og engir nema prestarnir máttu eta. 5Eða hafið þið ekki lesið í lögmálinu að prestar vanhelga hvíldardaginn í musterinu á hvíldardögum og eru þó án saka? 6En ég segi ykkur: Hér er meira en musterið. 7Ef þið hefðuð skilið hvað felst í orðunum: Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir, munduð þið ekki hafa sakfellt saklausa menn. 8Því að Mannssonurinn er Drottinn hvíldardagsins.“
Með visna hönd
9Jesús fór þaðan og kom í samkundu þeirra. 10Þar var maður með visna hönd. Og þeir spurðu Jesú: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi?“ Þeir hugðust kæra hann.
11Hann svarar þeim: „Nú á einhver ykkar eina sauðkind og hún fellur í gryfju á hvíldardegi. Mundi hann ekki taka hana og draga upp úr? 12Hve miklu er þó maðurinn sauðkindinni fremri! Það er því leyfilegt að gera góðverk á hvíldardegi.“ 13Síðan segir hann við manninn: „Réttu fram hönd þína.“
Hann rétti fram höndina og hún varð heil sem hin. 14Þá gengu farísearnir út og tóku saman ráð sín gegn honum hvernig þeir gætu náð lífi hans.
Sjá þjón minn
15Þegar Jesús varð þess vís fór hann þaðan. Margir fylgdu honum og alla læknaði hann. 16En hann lagði ríkt á við þá að þeir gerðu hann eigi kunnan. 17Þannig átti það að rætast sem Jesaja spámaður sagði fyrir um:
18Sjá þjón minn sem ég hef útvalið,
minn elskaða sem ég hef velþóknun á.
Ég mun láta anda minn koma yfir hann
og hann mun boða þjóðunum rétt.
19Hvorki mun hann þrátta né hrópa
og lætur ekki heyra rödd sína á strætum.
20Brákaðan reyr brýtur hann ekki
og dapraðan hörkveik slekkur hann ekki,
uns hann hefur leitt réttinn til sigurs.
21Á nafn hans munu þjóðirnar vona.
Guðs ríki komið
22Þá var maður færður til Jesú haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann svo að hinn mállausi gat talað og séð. 23Allt fólkið varð furðu lostið og sagði: „Hann er þó ekki sonur Davíðs?“
24Þegar farísear heyrðu það sögðu þeir: „Þessi maður rekur ekki út illa anda nema með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda.“
25En Jesús vissi hugsanir þeirra og sagði við þá: „Hvert það ríki sem er sjálfu sér sundurþykkt leggst í auðn og hver sú borg eða heimili sem er sjálfu sér sundurþykkt fær ekki staðist. 26Ef Satan rekur Satan út er hann sjálfum sér sundurþykkur. Hvernig fær ríki hans þá staðist? 27Og ef ég rek illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar. 28En ef ég rek illu andana út með Guðs anda, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.
29Eða hvernig fær nokkur brotist inn í hús hins sterka og rænt eigum hans nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.
30Hver sem er ekki með mér er á móti mér og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir. 31Þess vegna segi ég yður: Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið. 32Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum verður það fyrirgefið en þeim sem mælir gegn heilögum anda verður ekki fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né í hinum komanda.
Af ávextinum þekkist tréð
33Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist tréð. 34Þér nöðrukyn, hvernig getið þér, sem eruð vond, talað gott? Af gnægð hjartans mælir munnurinn. 35Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði.
36En ég segi yður: Á dómsdegi munu menn verða að svara fyrir hvert ónytjuorð sem þeir mæla. 37Því af orðum þínum muntu sýknaður og af orðum þínum muntu sakfelldur verða.“
Tákn
38Þá sögðu nokkrir fræðimenn og farísear við Jesú: „Meistari, við viljum sjá þig gera tákn.“
39Jesús svaraði þeim: „Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar spámanns. 40Jónas var í kviði stórhvelisins þrjá daga og þrjár nætur og eins mun Mannssonurinn vera þrjá daga og þrjár nætur í skauti jarðar. 41Nínívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana því að þeir tóku sinnaskiptum við prédikun Jónasar og hér er meira en Jónas. 42Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt þessari kynslóð og sakfella hana því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons og hér er meira en Salómon.“
Verra hlutskipti
43Enn sagði Jesús: „Þegar óhreinn andi fer út af manni reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis en finnur ekki. 44Þá segir hann: Ég vil hverfa aftur í hús mitt þaðan sem ég fór. Og er hann kemur og finnur það tómt, sópað og prýtt 45fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri og þeir fara inn og setjast þar að og verður svo hlutskipti þess manns verra eftir en áður. Eins mun fara fyrir þessari vondu kynslóð.“
Móðir og bræður
46Meðan Jesús var enn að tala við fólkið komu móðir hans og bræður. Þau stóðu úti og vildu tala við hann. 47Einhver sagði við hann: „Móðir þín og bræður standa hér úti og vilja tala við þig.“#12.47 47. vers vantar í sum handrit.
48Jesús svaraði þeim er við hann mælti: „Hver er móðir mín og hverjir eru bræður mínir?“ 49Og hann rétti út höndina yfir lærisveina sína og sagði: „Hér er móðir mín og bræður mínir. 50Hver sem gerir vilja föður míns sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir.“

अहिले सेलेक्ट गरिएको:

Matteusarguðspjall 12: BIBLIAN07

हाइलाइट

शेयर गर्नुहोस्

कपी गर्नुहोस्

None

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्