Matteusarguðspjall 14
14
Jóhannes hálshöggvinn
1Um þessar mundir spyr Heródes fjórðungsstjóri tíðindin af Jesú. 2Og hann segir við sveina sína: „Þetta er Jóhannes skírari, hann er risinn frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk.“
3En Heródes hafði látið taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns, 4því Jóhannes hafði sagt við hann: „Þú mátt ekki eiga hana.“ 5Heródes vildi deyða hann en óttaðist fólkið þar eð menn töldu hann vera spámann.
6En á afmælisdegi Heródesar sté dóttir Heródíasar dans frammi fyrir gestunum og hreif Heródes svo, 7að hann sór þess eið að veita henni hvað sem hún bæði um.
8Að undirlagi móður sinnar segir hún: „Gef mér hér á fati höfuð Jóhannesar skírara.“
9Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gesta sinna bauð hann að veita henni þetta. 10Hann sendi böðla í fangelsið og lét hálshöggva Jóhannes þar. 11Höfuð hans var borið inn á fati og fengið stúlkunni en hún færði móður sinni.
12Lærisveinar Jóhannesar komu, tóku líkið og greftruðu, fóru síðan og sögðu Jesú.
Jesús mettar með fimm brauðum
13Þegar Jesús heyrði þetta fór hann þaðan á báti á óbyggðan stað og vildi vera einn. En fólkið frétti það og fór gangandi á eftir honum úr borgunum. 14Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna, hann kenndi í brjósti um þá og læknaði þá er sjúkir voru.
15Um kvöldið komu lærisveinarnir að máli við Jesú og sögðu: „Hér er engin mannabyggð og dagur liðinn. Lát nú fólkið fara svo að það geti náð til þorpanna og keypt sér vistir.“
16Jesús svaraði þeim: „Fólkið þarf ekki að fara, gefið því sjálfir mat.“
17Þeir svara honum: „Við höfum hér ekki nema fimm brauð og tvo fiska.“
18Hann segir: „Færið mér það hingað.“ 19Og hann bauð fólkinu að setjast í grasið. Þá tók hann brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum en þeir fólkinu. 20Og allir neyttu og urðu mettir. Og þeir tóku saman brauðbitana er af gengu, tólf körfur fullar. 21En þeir sem neytt höfðu voru um fimm þúsundir karlmanna, auk kvenna og barna.
Það er ég
22Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan sér yfir um meðan hann sendi fólkið brott. 23Og er hann hafði látið fólkið fara gekk hann til fjalls að biðjast fyrir í einrúmi. Þegar kvöld var komið var hann þar einn. 24En báturinn var þegar kominn langt frá landi og lá undir áföllum því að vindur var á móti.
25En er langt var liðið nætur#14.25 Orðrétt: á fjórðu næturvöku, þ.e. milli kl. þrjú og sex að nóttu. kom Jesús til þeirra, gangandi á vatninu. 26Þegar lærisveinarnir sáu hann ganga á vatninu varð þeim bilt við. Þeir sögðu: „Þetta er vofa,“ og æptu af hræðslu.
27En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: „Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir.“
28Pétur svaraði honum: „Ef það ert þú, Drottinn, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu.“
29Jesús svaraði: „Kom þú!“ Og Pétur sté úr bátnum og gekk á vatninu til hans. 30En er hann sá ofviðrið varð hann hræddur og tók að sökkva. Þá kallaði hann: „Drottinn, bjarga þú mér!“
31Jesús rétti þegar út höndina, tók í hann og sagði: „Trúlitli maður, hví efaðist þú?“
32Þeir stigu í bátinn og þá lægði vindinn. 33En þeir sem í bátnum voru féllu fram fyrir honum og sögðu: „Sannarlega ert þú sonur Guðs.“
Urðu alheilir
34Þegar þeir höfðu náð yfir um komu þeir að landi við Genesaret. 35Fólkið á þeim stað þekkti Jesú og sendi boð um allt nágrennið og menn færðu til hans alla þá er sjúkir voru. 36Þeir báðu hann að mega rétt snerta fald klæða hans og allir, sem snertu hann, urðu alheilir.
अहिले सेलेक्ट गरिएको:
Matteusarguðspjall 14: BIBLIAN07
हाइलाइट
शेयर गर्नुहोस्
कपी गर्नुहोस्

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007