Ást og hjónabandSýnishorn
Guð gaf okkur ekki hlutverk og væntingar innan hjónabandsins til þess að kæfa frelsi okkar. Hann vill bara að við vitum hvernig lífið virkar best. Umfjöllunarefni þessara ritningarversa er ást, virðing og undirgefni sem falla ekki alltaf vel að nútíma hugsunarhætti, en við getum verið viss um það að sá sem skapaði hjónabandið veit best hvernig við getum látið það dafna. Efir að þið lesið þessi ritningarvers saman upphátt talið saman um þá þætti sem ykkur finnst erfiðast að skilja eða að tileinka ykkur. Biðjið saman um að Guð megi leiða hvort ykkar inn í þau hlutverk sem hann hefur valið fyrir ykkur honum til dýrðar og af virðingu hvort fyrir öðru.
Ritningin
About this Plan
Með því að skoða hjónabandið í samhengi ritningarinnar þá gefum við Guði tækifæri til þess að opinbera fyrir okkur nýja sýn á sambönd okkar og styrkja þannig tengslin. Þessi lestraráætlun býður upp á stuttan daglegan lestur í ritningunni ásamt hugleiðingum hvern dag til að ýta undir samtöl og bæn við maka þinn. Þessi fimm daga áætlun er skammtíma skuldbinding til þess að styrka ævilangt samband ykkar. Til að fá frekari upplýsingar skoðaðu finds.life.church
More
Við viljum þakka Life.Church fyrir þessa lestraráætlun um ást og hjónaband. Frekari upplýsingar má finna á www.life.church