Biblían lifirSýnishorn
Biblían gerir gat á myrkrið
Diya vildi ekkert með Kristni hafa en árið 2017 deildi besti vinur Diya sínum vitnisburði í kirkju á Nýja Sjálandi. Diya mætti til að styðja hana... og hélt svo áfram að mæta. Hún gaf Jesú líf sítt seinna það ár stuttu áður en hún flutti til Indlands.
Að kynnast nýrri trú í landi án nokkurs Kristilegs samfélags var erfitt, á endanum varð Diya svo þunglynd að hún átti í erfiðleikum með að komast fram úr rúminu á morgnana.
"Ég var svo einmanna og átti í erfiðleikum með að tengjast fólki. Ég missti mikið af sjálfræði mínu og sjálfstæði þegar ég flutti til Indlands, margar eitraðar hugsanir komu upp í huga mér. Það var ekki fyrr en mér tókst að tengjast Ritningunni í YouVersion sem mér tókst að breyta hugsanagangi mínum.
YouVersion útvegaði Diya leið til að tengjast öðru Kristnu fólki og hún gat lært af þeim í gegnum Biblíuáætlanir. Síðan 2018 hefur hún lokið yfir 428 áætlunum.
Í hvert sinn sem Diya hefur einhverja spurningu þá opnar hún YouVersion appið og leitar að áætlunum um það umræðuefni. Því fleiri áætlanir sem hún klárar því meira vex hún í trúnni.
"Suma daga byrja ég á 11 áætlunum bara til að sökkva mér ofan í sannleikann. Það er tækifæri til að læra af fólki sem hefur gengið í gegnum það sama og þú og til að frá hvatningarorð frá þeim. Ég hef lært að ég er ekki ein í erfiðleikum mínum. Ég get heyrt frá fólki sem hefur átti við þunglyndi að stríða sem hefur komist í gegnum það og ég hef áttað mig á því að það eru til fylgjendur Jesú Krists sem eiga einnig við geðræna erfiðleika að stríða."
Núorðið ef Diya finnst hún einmanna, þunglynd eða einangruð þá man hún eftir loforðum Guðs og heldur sterkt í huga sér öllu því sem Jesús hefur talað til sín.
"Stundum þegar þú ert þunglyndur þá þarftu bara hvatningarorð. Appið var 'styttri leið' sem hjálpaði mér að skilja og átta mig á Biblíunni og minni eigin trú. Tæknin er svo flott verkfæri sem við höfum til að tengjast trúnni okkar. Ég hugsa ég væri ekki ennþá hérna ef ég hefði ekki haft leið til þess að tengjast í gegnum Krist, því þessir tímar voru mjög dimmir og Hann var eina ljósið sem ég hafði og hef enn."
Vegna kraftsins sem býr í Orði Guðs þá er hægt að breyta einangrun í tengingu og von sem má finna mitt í miðju mótlæti.
Hugleiddu nú sögu Diya um stund og talaðu svo við Guð um þá stöðu sem þú ert í og biddu Guð um að opinbera fyrir þér hver sannleikurinn sé í þínum málum. Leitaðu svo í Ritningunni eftir Hans orðum til þín um hvatningu og von. Leyfðu ljósi hans og gata hvert það myrkur sem leynist í þínu lífi.
Ritningin
About this Plan
Frá upphafi tímans hefur orđ Guđs endurreist hjörtu og huga fòlks og Guđ er ekki búinn enn. Í þessari 7 daga lestraráætlun munum viđ líta nánar á hvernig Guđ notar Biblíuna til ađ hafa áhrif á mannkynssöguna og breyta lífum fólks um allan heim.
More