YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 13

13
Skelfist ekki
1Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum segir einn lærisveina hans við hann: „Meistari, sjáðu, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!“
2Jesús svaraði honum: „Sérðu þessar miklu byggingar? Hér verður ekki steinn yfir steini, allt lagt í rúst.“
3Þá er Jesús sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés: 4„Seg þú okkur, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að allt þetta sé að koma fram?“
5En Jesús tók að segja þeim: „Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. 6Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og marga munu þeir leiða í villu. 7En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfist ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með kominn. 8Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
Verið vör um yður
9Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýkt og þér munuð leidd fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig. 10En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið. 11Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvað þér eigið að segja, heldur talið það sem yður verður gefið á þeirri stundu. Það eruð ekki þér sem talið heldur talar heilagur andi í yður. 12Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. 13Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn.
14En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar er síst skyldi“ − lesandinn athugi það − „þá flýi þau, sem í Júdeu eru, til fjalla. 15Sá sem er uppi á þaki fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt. 16Og sá sem er á akri skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína. 17Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum. 18Biðjið að það verði ekki um vetur. 19Á þeim dögum verður sú þrenging sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar allt til þessa og mun aldrei verða. 20Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra sem hann hefur útvalið.
21Og ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur, eða: Þar, þá trúið því ekki. 22Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn og þeir munu gera tákn svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það væri hægt. 23Gætið yðar. Ég hef sagt yður allt fyrir.
Mannssonurinn kemur
24En á þeim dögum, eftir þrenging þessa,
mun sólin sortna
og tunglið hætta að skína.
25Stjörnurnar munu hrapa af himni
og festingin riðlast.
26Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð. 27Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta.
Sumar í nánd
28Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér að sumar er í nánd. 29Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að endirinn er í nánd, fyrir dyrum. 30Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt þetta er komið fram. 31Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
Vakið
32En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. 33Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn. 34Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. 35Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. 36Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. 37Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy