1
Markúsarguðspjall 13:13
Biblían (2007)
Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn.
Compare
Explore Markúsarguðspjall 13:13
2
Markúsarguðspjall 13:33
Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn.
Explore Markúsarguðspjall 13:33
3
Markúsarguðspjall 13:11
Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvað þér eigið að segja, heldur talið það sem yður verður gefið á þeirri stundu. Það eruð ekki þér sem talið heldur talar heilagur andi í yður.
Explore Markúsarguðspjall 13:11
4
Markúsarguðspjall 13:31
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
Explore Markúsarguðspjall 13:31
5
Markúsarguðspjall 13:32
En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn.
Explore Markúsarguðspjall 13:32
6
Markúsarguðspjall 13:7
En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfist ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með kominn.
Explore Markúsarguðspjall 13:7
7
Markúsarguðspjall 13:35-37
Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“
Explore Markúsarguðspjall 13:35-37
8
Markúsarguðspjall 13:8
Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
Explore Markúsarguðspjall 13:8
9
Markúsarguðspjall 13:10
En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið.
Explore Markúsarguðspjall 13:10
10
Markúsarguðspjall 13:6
Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og marga munu þeir leiða í villu.
Explore Markúsarguðspjall 13:6
11
Markúsarguðspjall 13:9
Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýkt og þér munuð leidd fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig.
Explore Markúsarguðspjall 13:9
12
Markúsarguðspjall 13:22
Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn og þeir munu gera tákn svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það væri hægt.
Explore Markúsarguðspjall 13:22
13
Markúsarguðspjall 13:24-25
En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og festingin riðlast.
Explore Markúsarguðspjall 13:24-25
Home
Bible
Plans
Videos