YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 14

14
Með svikum
1Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. 2En þeir sögðu: „Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot meðal fólksins.“
Gott verk gerði hún
3Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. 4En þar voru nokkrir er gramdist þetta og þeir sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun á smyrslum? 5Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara#14.5 Sjá Mrk 6.37. og gefa fátækum.“ Og þeir atyrtu hana.
6En Jesús sagði: „Látið hana í friði! Hvað eruð þið að angra hana? Gott verk gerði hún mér. 7Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur og getið gert þeim gott nær þið viljið en mig hafið þið ekki ávallt. 8Hún gerði það sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrir fram smurt líkama minn til greftrunar. 9Sannlega segi ég ykkur: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess sem hún gerði og hennar minnst.“
Leitað færis
10Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann. 11Þegar þeir heyrðu það urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.
Búið til páskamáltíðar
12Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við Jesú: „Hvert vilt þú að við förum og búum þér páskamáltíðina?“
13Þá sendi Jesús tvo lærisveina sína og sagði við þá: „Farið inn í borgina og ykkur mun mæta maður sem ber vatnsker. Fylgið honum 14og þar sem hann fer inn skuluð þið segja við húsráðandann: Meistarinn spyr: Hvar er herbergið þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum? 15Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Búið þar til máltíðar fyrir okkur.“
16Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
17Um kvöldið kom hann með þeim tólf. 18Þegar þeir sátu að borði#14.18 Sjá Mrk 2.15. og mötuðust sagði Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Einn af ykkur mun svíkja mig, einn sem með mér etur.“
19Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: „Er það ég?“
20Hann svaraði þeim: „Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir brauðinu í fatið með mér. 21Mannssonurinn fer að sönnu héðan svo sem um hann er ritað en vei þeim manni sem því veldur að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.“
Heilög kvöldmáltíð
22Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það, gaf þeim og sagði: „Takið, þetta er líkami minn.“
23Og Jesús tók kaleik, gerði þakkir og gaf þeim og þeir drukku af honum allir. 24Og hann sagði við þá: „Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga. 25Sannlega segi ég ykkur: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.“
Til Olíufjallsins
26Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins. 27Og Jesús sagði við þá: „Þið munuð allir hafna mér því að ritað er:
Ég mun slá hirðinn
og sauðirnir munu tvístrast.
28En eftir að ég er upp risinn mun ég fara á undan ykkur til Galíleu.“
29Þá sagði Pétur: „Þótt allir hafni þér geri ég það aldrei.“
30Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu afneita mér þrisvar.“
31En Pétur kvað enn fastar að: „Þó að ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér.“
Eins töluðu þeir allir.
Í Getsemane
32Þeir koma til staðar er heitir Getsemane og Jesús segir við lærisveina sína: „Setjist hér meðan ég biðst fyrir.“ 33Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist. 34Hann segir við þá: „Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.“
35Þá gekk Jesús lítið eitt áfram, fell til jarðar og bað að þessi stund færi fram hjá sér ef þess væri kostur. 36Hann sagði: „Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil heldur sem þú vilt.“
37Jesús kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: „Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund? 38Vakið og biðjið svo að þið fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn en holdið veikt.“
39Aftur vék Jesús brott og baðst fyrir með sömu orðum. 40Þegar hann kom aftur fann hann þá enn sofandi því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir hvað þeir ættu að segja við hann.
41Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: „Sofið þið enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. 42Standið upp, förum! Sá er í nánd er mig svíkur.“
Tekinn höndum
43Um leið, meðan Jesús var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum og höfðu þeir sverð og barefli. 44Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: „Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.“
45Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: „Meistari!“ og kyssti hann. 46En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann fastan. 47Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 48Þá sagði Jesús við þá: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? 49Daglega var ég hjá ykkur í helgidóminum og kenndi og þið tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.“
50Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir Jesú og flýðu. 51En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann 52en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn.
Fyrir ráðinu
53Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. 54Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.
55Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann en fundu eigi. 56Margir báru þó ljúgvitni gegn honum en framburði þeirra bar ekki saman.
57Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn Jesú og sögðu: 58„Við heyrðum hann segja: Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gert, og reisa annað á þrem dögum sem ekki er með höndum gert.“ 59En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
60Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“
61En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: „Ertu Kristur, sonur hins blessaða?“
62Jesús sagði: „Ég er sá og þið munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hins almáttuga og koma í skýjum himins.“
63Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: „Hvað þurfum við nú framar votta við? 64Þið heyrðuð guðlastið. Hvað líst ykkur?“
Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.
65Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: „Þú ert spámaður, hver sló þig?“ Eins börðu þjónarnir hann.
Pétur afneitar
66Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins 67og sá hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: „Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.“
68Því neitaði Pétur og sagði: „Ekki veit ég né skil hvað þú ert að fara.“ Og hann gekk út í forgarðinn [en þá gól haninn].#14.68 Vantar í sum handrit.
69Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá sem hjá stóðu: „Þessi er einn af þeim.“ 70En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir er hjá stóðu enn við Pétur: „Víst ertu einn af þeim enda ertu Galíleumaður.“
71En Pétur sór og sárt við lagði: „Ég þekki ekki þennan mann sem þið talið um.“
72Um leið gól haninn annað sinn og Pétur minntist þess er Jesús hafði mælt við hann: „Áður en hani galar tvisvar muntu afneita mér þrisvar.“ Þá fór hann að gráta.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy