YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 12

12
Vondir vínyrkjar
1Þá tók Jesús að segja þeim dæmisögu: „Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi. 2Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að fá hjá þeim hlut af ávexti víngarðsins. 3En þeir tóku hann og börðu og sendu burt tómhentan. 4Aftur sendi hann til þeirra annan þjón. Hann lömdu þeir í höfuðið og svívirtu. 5Enn sendi hann annan og hann drápu þeir og marga fleiri ýmist börðu þeir eða drápu. 6Einn átti hann eftir enn, elskaðan son. Hann sendi hann síðastan til þeirra og sagði: Þeir munu virða son minn. 7En vínyrkjar þessir sögðu sín á milli: Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, þá fáum við arfinn. 8Og þeir tóku hann og drápu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn.
9Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera? Hann mun koma, tortíma vínyrkjunum og fá öðrum víngarðinn. 10Hafið þið eigi lesið þessa ritningu:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
11Þetta er verk Drottins
og undursamlegt í augum vorum.“
12Æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir vildu taka hann höndum en óttuðust fólkið. Þeir skildu að hann átti við þá með dæmisögunni. Og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.
Keisarinn og Guð
13Þá sendu þeir til Jesú nokkra farísea og Heródesarsinna og skyldu þeir veiða hann í orðum. 14Þeir koma og segja við hann: „Meistari, við vitum að þú ert sannorður og hirðir ekki um álit neins enda gerir þú þér engan mannamun heldur kennir Guðs veg í sannleika. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum við að gjalda eða ekki gjalda?“
15En Jesús sá hræsni þeirra og sagði við þá: „Hvers vegna leggið þið snörur fyrir mig? Fáið mér denar, látið mig sjá.“
16Þeir fengu honum pening. Hann spyr: „Hvers mynd og nafn er á peningnum?“
Þeir svöruðu: „Keisarans.“
17En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
Og þá furðaði stórlega á honum.
Guð lifenda
18Saddúkear, sem neita því að upprisa sé til, komu til hans og sögðu við hann: 19„Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður barnlaus, en láti eftir sig konu, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. 20Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu en dó barnlaus. 21Annar bróðirinn gekk að eiga hana og dó barnlaus. Eins hinn þriðji 22og allir sjö urðu barnlausir. Síðast allra dó konan. 23Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni þegar menn rísa upp? Allir sjö höfðu átt hana.“
24Jesús svaraði þeim: „Er það ekki þetta sem veldur því að þið villist: Þið þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs? 25Þegar menn rísa upp frá dauðum kvænast þeir hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himnum. 26En hafið þið ekki lesið í sögunni um þyrnirunninn í bók Móse að dauðir rísa upp? Guð segir við Móse: Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. 27Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda. Þið villist stórlega.“
Æðsta boðorð
28Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“
29Jesús svaraði: „Æðst er þetta: Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. 30Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. 31Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessum meira.“
32Fræðimaðurinn sagði þá við Jesú: „Rétt er það, meistari, satt sagðir þú. Einn er Guð og enginn er Guð annar en hann. 33Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.“
34Jesús sá að hann svaraði viturlega og sagði við hann: „Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.“
Og enginn þorði framar að spyrja hann.
Kristur er Drottinn
35Þegar Jesús var að kenna í helgidóminum sagði hann: „Hvernig geta fræðimennirnir sagt að Kristur sé sonur Davíðs? 36Sjálfur mælti Davíð af heilögum anda:
Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.
37Davíð kallar hann sjálfur drottin. Hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
Og hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann.
Viðvörun
38Þegar Jesús var að kenna þeim sagði hann: „Varist fræðimennina sem fýsir að ganga í síðskikkjum og láta heilsa sér á torgum, 39vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum. 40Þeir mergsjúga heimili ekkna en flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.“
Eyrir ekkjunnar
41Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. 42Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. 43Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna. 44Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in