YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 8

8
Verð þú hreinn
1Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. 2Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“#8.2 Líkþráir eða holdsveikir menn voru útilokaðir frá mannlegu samfélagi og öllu helgihaldi í musterinu og samkundum vegna sjúkdóms síns.
3Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni. 4Jesús sagði við hann: „Gæt þess að segja þetta engum en far þú, sýn þig prestinum og færðu þá fórn sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.“
Sem þú trúir
5Þegar Jesús kom til Kapernaúm gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann: 6„Drottinn, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn.“
7Jesús sagði: „Ég kem og lækna hann.“
8Þá sagði hundraðshöfðinginn: „Drottinn, ég er ekki verður þess að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð og mun sveinn minn heill verða. 9Því að sjálfur er ég maður sem verður að lúta valdi og ræður yfir hermönnum og ég segi við einn: Far þú, og hann fer, og við annan: Kom þú, og hann kemur, og við þjón minn: Ger þetta, og hann gerir það.“
10Þegar Jesús heyrði þetta undraðist hann og mælti við þau sem fylgdu honum: „Sannlega segi ég ykkur, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael. 11En ég segi ykkur: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki 12en börn ríkisins munu út rekin í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.“ 13Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: „Far þú, verði þér sem þú trúir.“
Og sveinninn varð heill á þeirri stundu.
Jesús læknar
14Jesús kom í hús Péturs og sá að tengdamóðir hans lá með sótthita. 15Hann snart hönd hennar og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina.
16Þegar kvöld var komið færðu menn til hans marga er haldnir voru illum öndum. Illu andana rak hann út með orði einu og alla þá er sjúkir voru læknaði hann. 17Orð Jesaja spámanns áttu að rætast: „Hann tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora.“
Fylg þú mér
18En þegar Jesús sá mikinn mannfjölda kringum sig bauð hann lærisveinunum að fara með sig yfir vatnið. 19Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: „Meistari, ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð.“
20Jesús sagði við hann: „Refar eiga greni og fuglar himins hreiður en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.“
21Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: „Drottinn, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.“
22Jesús svarar honum: „Fylg þú mér en lát hina dauðu jarða sína dauðu.“
Í stormi
23Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. 24Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. 25Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“
26Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
27Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“
Í byggð Gadarena
28Þegar Jesús kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir að enginn mátti þann veg fara. 29Þeir æpa: „Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?“
30En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit. 31Illu andarnir báðu hann og sögðu: „Ef þú rekur okkur út sendu okkur þá í svínahjörðina.“
32Hann sagði: „Farið!“ Út fóru þeir og í svínin og öll hjörðin ruddist fram af bröttum árbakkanum í vatnið og týndist þar.
33En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum sem haldnir voru illum öndum. 34Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú og þegar þeir sáu hann báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in