YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 9

9
Syndir fyrirgefnar
1Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.#9.1 Þ.e. Kapernaúm, sbr. Matt 4.13. 2Þar færa menn honum lama mann sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra sagði hann við lama manninn: „Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“
3Nokkrir fræðimenn hugsuðu þá með sjálfum sér: „Hann guðlastar!“
4En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: „Hví hugsið þið illt í hjörtum ykkar? 5Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru fyrirgefnar, eða: Statt upp og gakk? 6En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörðu að fyrirgefa syndir þá segi ég þér,“ − og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín!“
7Og hann stóð upp og fór heim til sín. 8En fólkið, sem horfði á þetta, varð óttaslegið og lofaði Guð sem gefið hafði mönnum slíkt vald.
Köllun Matteusar
9Þá er hann gekk þaðan sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: „Fylg þú mér!“
Og hann stóð upp og fylgdi honum.
10Nú bar svo við er Jesús sat að borði#9.10 Orðrétt: lá til borðs. Á hátíðum og í veislum lágu menn við máltíðir meðal Gyðinga eins og siður var hjá Grikkjum og Rómverjum. í húsi hans að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans. 11Þegar farísear sáu það sögðu þeir við lærisveinana: „Hvers vegna etur meistari ykkar með tollheimtumönnum og bersyndugum?“
12Jesús heyrði þetta og sagði: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. 13Farið og nemið hvað þetta merkir: Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara.“
Um föstu
14Þá koma til Jesú lærisveinar Jóhannesar og segja: „Hví föstum við og farísear en þínir lærisveinar fasta ekki?“
15Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir meðan brúðguminn er hjá þeim? En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn. Þá munu þeir fasta.
16Enginn lætur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat því þá rífur bótin út frá sér og verður af verri rifa. 17Ekki láta menn heldur nýtt vín á gamla belgi því þá springa belgirnir og vínið fer niður en belgirnir ónýtast. Menn láta nýtt vín á nýja belgi og varðveitist þá hvort tveggja.“
Trúin bjargar
18Meðan Jesús mælti þetta við þá kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: „Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna.“
19Jesús stóð upp og fór með honum og lærisveinar hans.
20Kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár, kom þá að baki Jesú og snart fald klæða hans. 21Hún hugsaði með sér: „Ef ég fæ aðeins snert klæði hans mun ég heil verða.“
22Jesús sneri sér við og er hann sá hana sagði hann: „Vertu hughraust, dóttir, trú þín hefur bjargað þér.“ Og konan varð heil frá þeirri stundu.
23Þegar Jesús kom að húsi forstöðumannsins og sá pípuleikara og fólkið í uppnámi 24sagði hann: „Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur.“ En þeir hlógu að honum. 25Þegar fólkið hafði verið látið fara gekk hann inn og tók hönd hennar og reis þá stúlkan upp. 26Og þessi tíðindi bárust um allt héraðið.
Tveir blindir
27Þá er Jesús hélt þaðan fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: „Miskunna þú okkur, sonur Davíðs.“
28Þegar hann kom heim gengu blindu mennirnir til hans. Jesús spyr þá: „Trúið þið að ég geti gert þetta?“
Þeir sögðu: „Já, Drottinn.“
29Þá snart hann augu þeirra og mælti: „Verði ykkur að trú ykkar.“ 30Og augu þeirra lukust upp. Jesús lagði ríkt á við þá og sagði: „Gætið þess að enginn fái að vita þetta.“
31En þeir fóru og víðfrægðu hann í öllu því héraði.
Mállaus maður
32Þegar þeir voru að fara var komið til Jesú með mállausan mann, haldinn illum anda. 33Og er illi andinn var út rekinn tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: „Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael.“
34En farísearnir sögðu: „Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.“
Uppskeran mikil
35Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi. 36En er Jesús sá mannfjöldann kenndi hann í brjósti um hann því menn voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir er engan hirði hafa. 37Þá sagði hann við lærisveina sína: „Uppskeran er mikil en verkamenn fáir. 38Biðjið því Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in