Matteusarguðspjall 7
7
Dæmið ekki
1Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. 2Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. 3Hví sér þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? 4Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga flísina úr auga þér? Og þó er bjálki í auga þínu. 5Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
6Gefið ekki hundum það sem heilagt er og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum og þeir snúa sér við og rífa yður í sig.
Biðjið, leitið
7Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. 8Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. 9Eða hver er sá maður meðal yðar sem gefur barni sínu#7.9 9 Orðrétt: syni sínum. stein er það biður um brauð? 10Eða höggorm þegar það biður um fisk? 11Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?
12Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir.
Þröngt hlið
13Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður sem liggur til glötunar og margir þeir sem þar fara inn. 14Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur er liggur til lífsins og fáir þeir sem finna hann.
Af ávöxtum þeirra
15Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. 16Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? 17Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu en slæmt tré vonda. 18Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. 19Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað. 20Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá.
Á bjargi
21Ekki mun hver sá sem segir við mig: Drottinn, Drottinn, ganga inn í himnaríki heldur sá einn er gerir vilja föður míns sem er á himnum.
22Margir munu segja við mig á þeim degi: Drottinn, Drottinn, höfum vér ekki í þínu nafni flutt orð Guðs, rekið út illa anda og gert mörg kraftaverk? 23Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.
24Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi. 25Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi en það féll eigi því það var grundvallað á bjargi.
26En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni er byggði hús sitt á sandi. 27Steypiregn skall á, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi. Það féll og fall þess var mikið.“
28Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu varð mannfjöldinn djúpt snortinn af orðum hans 29því að hann kenndi eins og sá er vald hefur og ekki eins og fræðimenn þeirra.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 7: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
![None](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimageproxy.youversionapi.com%2F58%2Fhttps%3A%2F%2Fweb-assets.youversion.com%2Fapp-icons%2Fen.png&w=128&q=75)
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007