1
Matteusarguðspjall 7:7
Biblían (2007)
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.
Compare
Explore Matteusarguðspjall 7:7
2
Matteusarguðspjall 7:8
Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða.
Explore Matteusarguðspjall 7:8
3
Matteusarguðspjall 7:24
Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi.
Explore Matteusarguðspjall 7:24
4
Matteusarguðspjall 7:12
Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir.
Explore Matteusarguðspjall 7:12
5
Matteusarguðspjall 7:14
Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur er liggur til lífsins og fáir þeir sem finna hann.
Explore Matteusarguðspjall 7:14
6
Matteusarguðspjall 7:13
Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður sem liggur til glötunar og margir þeir sem þar fara inn.
Explore Matteusarguðspjall 7:13
7
Matteusarguðspjall 7:11
Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?
Explore Matteusarguðspjall 7:11
8
Matteusarguðspjall 7:1-2
Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
Explore Matteusarguðspjall 7:1-2
9
Matteusarguðspjall 7:26
En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni er byggði hús sitt á sandi.
Explore Matteusarguðspjall 7:26
10
Matteusarguðspjall 7:3-4
Hví sér þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga flísina úr auga þér? Og þó er bjálki í auga þínu.
Explore Matteusarguðspjall 7:3-4
11
Matteusarguðspjall 7:15-16
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum?
Explore Matteusarguðspjall 7:15-16
12
Matteusarguðspjall 7:17
Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu en slæmt tré vonda.
Explore Matteusarguðspjall 7:17
13
Matteusarguðspjall 7:18
Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu.
Explore Matteusarguðspjall 7:18
14
Matteusarguðspjall 7:19
Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað.
Explore Matteusarguðspjall 7:19
Home
Bible
Plans
Videos