YouVersion Logo
Search Icon

Fyrsta Mósebók 32

32
Jakob býst til að mæta Esaú
1Þegar Jakob hélt áfram för sinni urðu englar á vegi hans. 2„Þetta eru herbúðir Guðs,“ sagði Jakob er hann sá þá og hann nefndi staðinn Mahanaím. 3Jakob sendi mann á undan sér til Esaú, bróður síns, í Seír í Edóm 4með þessi skilaboð: „Segið við Esaú, herra minn: Svo segir Jakob, þjónn þinn: Ég hef búið sem útlendingur hjá Laban og verið þar allt til þessa. 5Ég hef eignast uxa, asna og sauðfénað, þræla og ambáttir og nú sendi ég boð um þetta til herra míns í þeirri von að ég finni náð í augum þínum.“
6Sendimennirnir komu aftur til Jakobs og sögðu: „Við vorum hjá Esaú bróður þínum. Hann er á leiðinni á móti þér með fjögur hundruð manna lið.“ 7Þá varð Jakob óttasleginn og fullur kvíða. Hann skipti fólkinu, sem með honum var, í tvo flokka svo og sauðunum, nautunum og úlföldunum. 8Hann hugsaði með sér: „Ráðist Esaú á annan flokkinn þá getur hinn komist undan.“
9Jakob baðst fyrir: „Guð Abrahams, föður míns, og Guð Ísaks, föður míns, Drottinn, þú sem sagðir við mig: Snúðu aftur til lands þíns og til ættfólks þíns og ég mun láta þér farnast vel. 10Ég er ekki verður allra þeirra velgjörða og allrar þeirrar trúfesti sem þú hefur auðsýnt þjóni þínum. Ég hafði aðeins staf minn meðferðis þegar ég fór yfir Jórdan en nú ræð ég yfir tveimur flokkum. 11Bjargaðu mér nú undan Esaú, bróður mínum, því að ég óttast að hann komi og deyði okkur, konur okkar og börn. 12Þú hefur sjálfur sagt: Ég mun láta þér farnast vel og gera niðja þína sem sandkorn á sjávarströnd þannig að ekki verði tölu á þá komið.“
13Jakob var kyrr þar um nóttina og tók gjöf handa Esaú, bróður sínum, af því sem hann hafði eignast: 14Tvö hundruð geitur og tuttugu geithafra, tvö hundruð ær og tuttugu hrúta, 15þrjátíu úlfaldahryssur með folöldum, fjörutíu kýr og tíu naut, tuttugu ösnur og tíu ösnufola. 16Hann fékk dýrin í hendur þjónum sínum, hverja hjörð fyrir sig, og sagði við þjónana: „Farið á undan mér og hafið bil á milli hjarðanna.“ 17Við þann sem fyrstur fór sagði hann: „Þegar Esaú, bróðir minn, mætir þér og spyr á vegum hvers þú sért og hvert för þinni sé heitið og hver eigi dýrin sem þú rekur á undan þér, 18þá skaltu svara: Jakob, þjónn þinn, á dýrin. Þau eru gjöf sem hann sendir Esaú, herra mínum. Sjálfur kemur hann á eftir okkur.“ 19Sömu fyrirmæli gaf hann öðrum og þriðja og öllum sem hjarðirnar ráku og mælti: „Þannig skuluð þið tala við Esaú þegar þið hittið hann. 20Þið skuluð einnig segja: Jakob, þjónn þinn, kemur sjálfur á eftir okkur,“ því að hann hugsaði: „Ég ætla að blíðka hann með gjöfinni sem ég sendi á undan mér. Síðan mun ég sjálfur hitta hann. Vera má að hann taki mér þá vel.“ 21Þannig var gjöfin send á undan Jakobi en sjálfur var hann þessa nótt í búðunum.
Jakobsglíman
22Um nóttina reis Jakob á fætur, tók báðar konur sínar, báðar ambáttir sínar og syni sína ellefu og fór yfir Jabbok á vaðinu. 23Hann leiddi þau yfir ána og allt sem hann átti hafði hann meðferðis. 24Jakob varð síðan einn eftir og maður nokkur glímdi við hann uns dagur rann. 25Þegar honum varð ljóst að hann gæti ekki sigrað Jakob sló hann á mjöðm hans svo að hann gekk úr augnakörlunum er þeir glímdu. 26„Slepptu mér,“ sagði maðurinn, „því að dagur rennur.“ „Ég sleppi þér ekki nema þú blessir mig,“ svaraði Jakob. 27„Hvað heitir þú?“ spurði maðurinn. „Jakob,“ svaraði hann. 28Þá mælti hann: „Ekki skaltu lengur heita Jakob heldur Ísrael því að þú hefur glímt við Guð og menn og unnið sigur.“ 29Jakob sagði við hann: „Segðu mér nafn þitt.“ Hann svaraði: „Hvers vegna spyrðu mig nafns?“ Og hann blessaði hann þar. 30Jakob nefndi staðinn Peníel, „því að ég hef,“ sagði hann, „séð Guð augliti til auglitis og þó haldið lífi.“ 31Þegar hann fór frá Penúel rann sólin upp. Gekk hann þá haltur vegna mjaðmarinnar. 32Þess vegna eta Ísraelsmenn allt til þessa dags ekki sinina sem er ofan á augnakarlinum því að hann hitti mjöðm Jakobs þar sem sinin er undir.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in