Síðara Pétursbréf 1
1
Kveðja
1Símon Pétur, þjónn og postuli Jesú Krists, heilsar þeim sem Guð vor og frelsari Jesús Kristur hefur í réttlæti sínu gefið sömu dýrmætu trú og mér.
2Náð og friður margfaldist með yður með þekkingu á Guði og Jesú, Drottni vorum.
Hluttakendur í guðlegu eðli
3Með guðlegum mætti sínum hefur Jesús Kristur gefið okkur allt sem þarf til lífs í guðrækilegri breytni, með þekkingunni á honum sem hefur kallað okkur með dýrð sinni og dáð.#1.3 Annar lesháttur: til hlutdeildar í dýrð sinni og dáð. 4Með því hefur hann veitt okkur dýrmæt og háleit fyrirheit sem fela í sér að þið komist undan spillingunni í heiminum sem girndin veldur og verðið hluttakendur í guðlegu eðli. 5Leggið þess vegna alla stund á að sýna í trú ykkar dygð og í dygðinni þekkingu, 6í þekkingunni sjálfsaga, í sjálfsaganum þolgæði, í þolgæðinu guðrækni, 7í guðrækninni bróðurelsku og í bróðurelskunni kærleika. 8Ef þið hafið þetta til að bera og vaxið í því verðið þið hvorki iðjulaus né mun þekking ykkar á Drottni vorum Jesú Kristi reynast dáðlaus og ávaxtalaus. 9En sá sem ekki hefur þetta til að bera er blindur í skammsýni sinni og hefur misst sjónar á að hann hafi verið hreinsaður af fyrri syndum sínum.
10Kostið þess vegna fremur kapps um, systkin,#1.10 Orðrétt: bræður. að gera köllun ykkar og útvalning vissa. Ef þið gerið það munuð þið aldrei hrasa. 11Þá mun ykkur ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.
12Þess vegna ætla ég mér ávallt að minna ykkur á þetta enda þótt þið vitið það og hvikið ekki frá sannleikanum sem þið nú hafið öðlast. 13Ég álít mér líka skylt, á meðan ég er í þessari tjaldbúð, að halda ykkur vakandi með því að rifja þetta upp fyrir ykkur. 14Ég veit að þess mun skammt að bíða að tjaldbúð minni verði svipt. Það hefur Drottinn vor Jesús Kristur birt mér. 15Ég vil einnig leggja kapp á að þið ætíð eftir burtför mína getið minnst þessa.
Sjónarvottar að hátign hans
16Ekki notaði ég uppspunnar skröksögur er ég kunngjörði ykkur mátt og komu Drottins vors Jesú Krists heldur hafði ég verið sjónarvottur að hátign hans. 17Því hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð þá er raust barst honum frá hinni dýrlegu hátign: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ 18Þessa raust heyrði ég sjálfur koma frá himni þá er ég var með honum á fjallinu helga.
19Nú getum við enn betur treyst orði spámannanna. Það er rétt af ykkur að gefa gaum að því eins og ljósi sem skín á myrkum stað þangað til dagur ljómar og morgunstjarnan rennur upp í hjörtum ykkar. 20Vitið það umfram allt að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. 21Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.
Currently Selected:
Síðara Pétursbréf 1: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007