YouVersion Logo
Search Icon

Síðara Pétursbréf 2

2
Falsspámenn
1En falsspámenn komu einnig upp meðal lýðsins. Eins munu falskennendur líka verða á meðal ykkar er smeygja munu inn háskalegum villukenningum og jafnvel afneita Drottni sínum, sem keypti þá, og leiða yfir sjálfa sig bráða glötun. 2Margir munu fylgja ólifnaði þeirra og sakir þeirra mun vegur sannleikans fá á sig illt orð. 3Af ágirnd munu þeir með uppspunnum orðum hafa ykkur að féþúfu. En dómurinn yfir þeim er löngu kveðinn upp og fyrnist ekki og glötun þeirra blundar ekki.
4Ekki þyrmdi Guð englunum er þeir syndguðu. Hann steypti þeim niður í undirdjúpin og setti þá í myrkrahella#2.4 Annar lesháttur: myrkrafjötur. þar sem þeir eru geymdir til dómsins. 5Ekki þyrmdi hann hinum forna heimi en varðveitti Nóa, boðbera réttlætisins, við áttunda mann er hann lét vatnsflóð koma yfir heim hinna óguðlegu. 6Hann dæmdi borgirnar Sódómu og Gómorru til eyðingar og brenndi þær til ösku og setti þær til viðvörunar þeim er síðar lifðu óguðlega. 7En hann frelsaði Lot, hinn réttláta mann, er mæddist af svívirðilegum lifnaði hinna guðlausu. 8Sá réttláti maður bjó á meðal þeirra og mæddist í sinni réttlátu sálu dag frá degi af þeim ólöglegu verkum er hann sá og heyrði.
9Þannig veit Drottinn hvernig hann á að hrífa hina guðhræddu úr freistingu en refsa hinum ranglátu og geyma þá til dómsdags, 10einkum þá sem í breytni sinni stjórnast af saurlífisfýsn og fyrirlíta drottinvald.
Þessir fífldjörfu sjálfbirgingar skirrast ekki við að lastmæla tignum. 11Jafnvel englarnir, sem eru þeim meiri að mætti og valdi, fara ekki með guðlast þegar þeir ákæra þá hjá Drottni.
12Þessir menn eru eins og skynlausar skepnur sem eru fæddar til að veiðast og tortímast. Þeir lastmæla því sem þeir skilja ekki og munu þess vegna farast eins og dýrin 13og fá þannig að líða fyrir hið illa sem þeir gerðu.
Þeir hafa yndi af að svalla um miðjan dag. Þeir eru skömm og smán þegar þeir blekkja ykkur og neyta máltíða með ykkur og svalla. 14Augu þeirra eru full hórdóms og þeim verður ekki frá syndinni haldið. Þeir fleka óstyrkar sálir, hjarta þeirra hefur tamið sér ágirnd. Það er bölvun yfir þeim. 15Þeir hafa farið af rétta veginum og lent í villu. Þeir fara sömu leið og Bíleam, sonur Bósors,#2.15 Annar lesháttur: Beórs; sjá 4Mós 22.−24. kafla. sem elskaði ranglætislaun. 16En hann fékk ádrepu fyrir glæp sinn. Mállaus eykurinn talaði mannamál og aftraði fásinnu spámannsins.
17Vatnslausir brunnar eru þessir menn, þoka hrakin af hvassviðri, þeirra bíður dýpsta myrkur. 18Þeir láta klingja innantóm diguryrði og tæla með holdlegum girndum og svívirðilegum lifnaði þá sem eru í þann veginn að sleppa frá þeim sem ganga í villu. 19Þeir heita þeim frelsi þótt þeir séu sjálfir þrælar spillingarinnar því að sérhver verður þræll þess sem hann hefur beðið ósigur fyrir. 20Ef þeir sem sluppu frá saurgun heimsins, af því að þeir þekktu Drottin vorn og frelsara Jesú Krist, flækja sig í heimi að nýju og bíða ósigur, þá er hið síðara orðið þeim verra en hið fyrra. 21Því að betra hefði þeim verið að hafa ekki þekkt veg réttlætisins en að hafa þekkt hann og snúa síðan aftur frá hinu heilaga boðorði sem þeim hafði verið gefið. 22Fram á þeim hefur komið þetta sannmæli: „Hundur snýr aftur til spýju sinnar,“ og: „Þvegið svín veltir sér í sama saur.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in