YouVersion Logo
Search Icon

Síðara Pétursbréf 3

3
Dagur Drottins
1Þetta er nú annað bréfið sem ég skrifa ykkur, þið elskuðu, og í þeim báðum hef ég reynt að halda hinu hreina hugarfari vakandi hjá ykkur. 2Það reyni ég með því að rifja upp fyrir ykkur þau orð, sem heilagir spámenn hafa áður talað, og boðorð Drottins vors og frelsara er postular ykkar hafa flutt. 3Þetta skuluð þið þá fyrst vita, að á síðustu dögum munu koma spottarar er stjórnast af eigin girndum 4og segja með spotti: „Hvað verður úr fyrirheitinu um komu hans? Því að síðan feðurnir sofnuðu stendur allt við hið sama eins og frá upphafi veraldar.“ 5Viljandi gleyma þeir því að himnar og jörð voru til forðum. Guð skapaði þá með orði sínu og jörðin reis upp úr vatni og hvíldi á vatni. 6Þess vegna gekk vatnsflóðið yfir þann heim sem þá var svo að hann fórst. 7Eins ætlar Guð með sama orði að eyða með eldi himnunum sem nú eru ásamt jörðinni. Hann mun varðveita þá til þess dags er óguðlegir menn verða dæmdir og tortímast.
8En þetta eitt má ykkur ekki gleymast, þið elskuðu, að einn dagur er hjá Drottni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við ykkur þar eð hann vill ekki að neinn glatist heldur að allir komist til iðrunar.
10En dagur Drottins mun koma sem þjófur og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný, frumefnin sundurleysast í brennandi hita og jörðin og þau verk, sem á henni eru, upp brenna. 11Þar eð allt þetta ferst, þannig ber ykkur að lifa heilögu og guðrækilegu lífi 12og bíða eftir degi Guðs og flýta fyrir að hann komi. Þá munu himnarnir leysast sundur í eldi og frumefnin bráðna af brennandi hita. 13En eftir fyrirheiti hans væntum við nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr.
14Með því að þið nú, þið elskuðu, væntið slíkra hluta, þá kappkostið að lifa í friði frammi fyrir honum, flekklaus og vammlaus. 15Álítið langlyndi Drottins vors vera hjálpræðisleið. Þetta er það sem hinn elskaði bróðir okkar, Páll, hefur ritað ykkur eftir þeirri speki sem honum er gefin. 16Það gerir hann líka í öllum bréfum sínum þegar hann talar um þetta. En í þeim er sumt þungskilið er fáfróðir og staðfestulausir menn rangtúlka, eins og aðrar ritningar, sjálfum sér til tortímingar.
17Fyrst þið vitið þetta fyrir fram, þið elskuðu, þá hafið gát á ykkur að þið látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá staðfestu ykkar. 18Vaxið í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara Jesú Krists. Honum sé dýrðin nú og til eilífðardags. Amen.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in