Fyrra Pétursbréf 5
5
Verið algáð
1Öldungana ykkar á meðal hvet ég sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig á hlutdeild í þeirri dýrð sem mun opinberast: 2Verið hirðar þeirrar hjarðar sem Guð hefur falið ykkur. Gætið hennar ekki nauðugir heldur af fúsu geði eins og Guð vill, ekki af gróðafíkn heldur fúslega. 3Þið skuluð ekki drottna yfir söfnuðunum heldur vera fyrirmynd hjarðarinnar. 4Þegar hinn æðsti hirðir birtist munuð þið öðlast þann dýrðarsveig sem aldrei fölnar.
5Og þið sem yngri eruð, verið öldungunum hlýðin og öll lítillát hvert gagnvart öðru því að „Guð stendur gegn dramblátum en auðmjúkum veitir hann náð“. 6Beygið ykkur því undir Guðs voldugu hönd til þess að hann upphefji ykkur á sínum tíma. 7Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
8Verið algáð, vakið. Óvinur ykkar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann getur tortímt. 9Standið gegn honum stöðug í trúnni og vitið að bræður ykkar og systur#5.9 Orðrétt: bræður ykkar. um allan heim verða fyrir sömu þjáningum. 10En er þið hafið þjáðst um lítinn tíma mun Guð, sem veitir alla náð og hefur í Kristi kallað ykkur til sinnar eilífu dýrðar, sjálfur fullkomna ykkur, styrkja og gera ykkur öflug. 11Hans er mátturinn um aldir alda. Amen.
Kveðjur
12Ég hef látið Silvanus, sem er trúr bróðir í mínum augum, skrifa þetta stutta bréf til þess að hvetja ykkur og vitna hátíðlega að þetta er hin sanna náð Guðs. Standið stöðug í henni.
13Söfnuðurinn í Babýlon,#5.13 Sennilega er hér átt við Róm, sbr. Opb 14−18. útvalinn eins og þið, og Markús, sonur minn, heilsa ykkur. 14Heilsið hvert öðru með kærleikskossi.
Friður sé með yður öllum sem eruð í Kristi.
Currently Selected:
Fyrra Pétursbréf 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007