YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Þessaloníkubréf 4

4
Framför í helgun
1Að endingu bið ég ykkur, bræður og systur,#4.1 Orðrétt: bræður. og hvet ykkur í Drottni Jesú til að breyta eins og þið hafið numið af mér og þóknast Guði eins og þið reyndar gerið. En takið enn meiri framförum. 2Þið vitið hvaða fyrirmæli ég gaf ykkur frá Drottni Jesú. 3Það er vilji Guðs að þið verðið heilög. Hann vill að þið haldið ykkur frá óskírlífi, 4að sérhvert ykkar temji sér að halda líkama sínum í helgun og heiðri#4.4 Eða: að sérhver ykkar láti sér lærast að lifa hjúskaparlífi við konu sína í heilagleika og heiðri. 5en ekki í losta eins og heiðingjarnir er ekki þekkja Guð. 6Og enginn skyldi ganga á hlut eða blekkja nokkurn bróður eða systur#4.6 Orðrétt: bróður sinn. í slíkum sökum. Því að Drottinn hegnir fyrir allt þvílíkt eins og ég hef áður sagt ykkur og varað ykkur við. 7Ekki kallaði Guð okkur til saurlifnaðar heldur helgunar. 8Sá sem lítilsvirðir þetta lítilsvirðir þess vegna ekki mann heldur Guð sem gefur ykkur sinn heilaga anda.
9Um bróðurkærleikann þarf ég ekki að skrifa ykkur því Guð hefur sjálfur kennt ykkur að elska hvert annað. 10Og þið auðsýnið líka öllum trúsystkinum#4.10 Orðrétt: bræðrum. í allri Makedóníu sama kærleika. En ég hvet ykkur, systkin,#4.10 Orðrétt: bræður. að taka enn meiri framförum. 11Leggið metnað ykkar við að lifa kyrrlátu lífi og stunda hvert sitt starf og vinna með höndum ykkar eins og ég hef boðið ykkur. 12Þannig hegðið þið ykkur á viðeigandi hátt gagnvart þeim sem fyrir utan eru og eruð upp á engan komin.
Endurkoma Drottins
13Ekki vil ég, systkin,#4.13 Orðrétt: bræður. láta ykkur vera ókunnugt um þau sem sofnuð eru, til þess að þið séuð ekki hrygg eins og hin sem ekki eiga von. 14Því að ef við trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þau sem sofnuð eru.
15Því að það segi ég ykkur, og það er orð Drottins, að við, sem verðum eftir á lífi við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en þau sem sofnuð eru. 16Þegar Guð skipar fyrir, þegar raust erkiengilsins kveður við og básúna Guðs hljómar, mun sjálfur Drottinn stíga niður af himni og þau sem dóu í trú á Krist munu fyrst upp rísa. 17Þá munum við sem eftir lifum verða hrifin burt ásamt þeim í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum við vera með Drottni alla tíma. 18Uppörvið því hvert annað með þessum orðum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in