Fyrra Þessaloníkubréf 5
5
Börn ljóssins og dagsins
1En um tíma og tíðir hafið þið, bræður og systur,#5.1 Orðrétt: bræður. ekki þörf á að ykkur sé skrifað. 2Þið vitið það sjálf gjörla að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu. 3Þegar menn segja: „Friður og engin hætta,“ þá kemur snögglega tortíming yfir þá eins og jóðsótt yfir þungaða konu. Og þeir munu alls ekki undan komast. 4En þið, systkin,#5.4 Orðrétt: bræður. eruð ekki í myrkri svo að dagurinn geti komið yfir ykkur sem þjófur. 5Þið eruð öll börn ljóssins og börn dagsins. Við heyrum ekki nóttunni til eða myrkrinu. 6Sofum því ekki eins og aðrir heldur vökum og verum allsgáð. 7Því að þau sem sofa, sofa um nætur og þau sem drekka sig drukkin, drekka um nætur. 8En við sem heyrum deginum til skulum vera allsgáð, klædd trú og kærleika sem brynju og voninni um frelsun sem hjálmi. 9Guð hefur ekki ætlað okkur að verða reiðinni að bráð heldur að öðlast sáluhjálp sakir Drottins vors Jesú Krists. 10Hann dó fyrir okkur til þess að við mættum lifa með honum, hvort sem við vökum eða sofum. 11Hvetjið því og uppbyggið hvert annað, eins og þið og gerið.
Fyrirmæli og kveðjur
12Ég bið ykkur, systkin,#5.12 Orðrétt: bræður. að meta þá að verðleikum sem erfiða á meðal ykkar, veita ykkur forstöðu og kenna ykkur að lifa í samfélagi Drottins. 13Auðsýnið þeim sérstaka virðingu og kærleika fyrir starf þeirra. Lifið í friði ykkar á milli.
14Ég hvet ykkur, systkin:#5.14 Orðrétt: bræður. Vandið um við iðjulausa, hughreystið ístöðulitla, takið að ykkur óstyrka, verið þolinmóð við alla. 15Gætið þess að enginn gjaldi neinum illt með illu en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hvert við annað og við alla aðra.
16Verið ætíð glöð. 17Biðjið án afláts. 18Þakkið alla hluti því að það er vilji Guðs með ykkur í Kristi Jesú.
19Slökkvið ekki andann. 20Fyrirlítið ekki spádómsorð. 21Prófið allt, haldið því sem gott er. 22En forðist allt illt í hvaða mynd sem er.
23En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. 24Trúr er sá er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.
25Systkin,#5.25 Orðrétt: Bræður. biðjið fyrir mér.
26Heilsið öllum í söfnuðinum#5.26 Orðrétt: bræðrunum. með heilögum kossi.
27Ég bið og brýni yður í Drottins nafni að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum í söfnuðinum.#5.27 Orðrétt: bræðrunum.
28Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður.
Currently Selected:
Fyrra Þessaloníkubréf 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007