Matteusarguðspjall 15
15
Hið ytra og innra
1Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu: 2„Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir þvo ekki hendur sínar#15.2 Átt við helgiathöfn, trúarlegan „þvott“, ekki hreinlætisathöfn skv. nútímaskilningi. áður en þeir neyta matar.“
3Hann svaraði þeim: „Hvers vegna brjótið þið sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar ykkar? 4Guð hefur sagt: Heiðra föður þinn og móður, og: Hver sem formælir föður eða móður skal deyja. 5En þið segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: Það sem ég hefði átt að styrkja þig með gef ég til musterisins, 6hann þarf ekki að heiðra föður sinn [eða móður]#15.6 Vantar í sum handrit.. Þið ógildið orð Guðs með erfikenningu ykkar. 7Hræsnarar, sannspár var Jesaja um ykkur er hann segir:
8Þessir menn heiðra mig með vörunum
en hjarta þeirra er langt frá mér.
9Til einskis dýrka þeir mig
því að þeir kenna það eitt sem menn hafa samið.“
10Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann og sagði: „Heyrið og skiljið. 11Ekki saurgar það manninn sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn sem út fer af munni.“
12Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: „Veistu að farísearnir fyrtust við það sem þú sagðir?“
13Jesús svaraði: „Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða. 14Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan falla báðir í gryfju.“
15Þá sagði Pétur við Jesú: „Skýrðu fyrir okkur líkinguna.“
16Hann svaraði: „Hafið þið ekki enn skilið? 17Skiljið þið ekki að allt, sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni? 18En það sem út fer af munni kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn. 19Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi. 20Þetta er það sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann.“
Kanversk kona
21Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. 22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.“
23En Jesús svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: „Láttu hana fara, hún eltir okkur með hrópum.“
24Jesús mælti: „Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraels ætt.“
25Konan kom, laut honum og sagði: „Drottinn, hjálpa þú mér!“
26Hann svaraði: „Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“
27Hún sagði: „Satt er það, Drottinn, þó eta hundarnir mola þá sem falla af borðum húsbænda þeirra.“
28Þá mælti Jesús við hana: „Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.“ Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.
Hópum saman
29Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar. 30Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans og hann læknaði þá. 31Fólkið undraðist þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels.
Jesús mettar með sjö brauðum
32Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: „Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni.“
33Lærisveinarnir sögðu: „Hvar fáum við nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?“
34Jesús spyr: „Hve mörg brauð hafið þið?“
Þeir svara: „Sjö og fáeina smáfiska.“
35Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, 36tók brauðin sjö og fiskana, gerði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum en lærisveinarnir fólkinu. 37Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar. 38En þeir sem neytt höfðu voru fjórar þúsundir karlmanna, auk kvenna og barna.
39Síðan lét Jesús fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.
अहिले सेलेक्ट गरिएको:
Matteusarguðspjall 15: BIBLIAN07
हाइलाइट
शेयर गर्नुहोस्
कपी गर्नुहोस्

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007