YouVersion Logo
Search Icon

Rómverjabréfið 11

11
Guð hefur ekki útskúfað lýð sínum
1Ég spyr nú: Hefur Guð útskúfað lýð sínum? Öðru nær! Sjálfur er ég Ísraelsmaður, af kyni Abrahams, ættkvísl Benjamíns. 2Guð hefur ekki útskúfað lýð sínum sem hann þekkti fyrir fram. Ég minni á það sem Ritningin segir í kaflanum um Elía, hvernig hann kemur fram fyrir Guð með kæru á hendur Ísrael: 3„Drottinn, spámenn þína hafa þeir drepið og rifið niður ölturu þín, ég er einn eftir og þeir sitja um líf mitt.“ 4En hvaða svar fær hann hjá Guði? „Ég hef tekið frá handa mér sjö þúsundir manna sem hafa ekki beygt kné fyrir Baal.“ 5Eins eru á okkar tíma leifar eftir sem Guð hefur valið af náð. 6En sé það af náð er það ekki vegna verka, þá væri náðin ekki orðin náð.
7Hvað merkir þetta? Að það sem Ísrael keppir eftir hlotnaðist honum ekki en útvöldum hlotnaðist það. Hinir urðu forhertir 8eins og ritað er: „Guð gaf þeim sljóan anda, augu sem sjá ekki, eyru sem heyra ekki allt fram á þennan dag.“
9Og Davíð segir: „Verði borðhald þeirra snara og gildra þeim til falls og refsingar. 10Blindist augu þeirra að þeir sjái ekki og ger bak þeirra bogið um aldur.“
11Nú spyr ég: Hrösuðu þá Ísraelsmenn til þess að falla að fullu? Fjarri fer því. Fall þeirra varð heiðingjum hjálpræði. Það átti að vekja afbrýði hjá Gyðingum. 12Hafi fall þeirra orðið heiminum auður og ófarir þeirra heiðingjum auður, hve miklu mun þá muna þegar þeir koma allir með tölu?
Rótin og greinarnar
13En við ykkur, heiðingjar, segi ég: Nú er ég einmitt postuli heiðingja og þá þjónustu vegsama ég. 14Vera mætti að ég gæti vakið afbrýði hjá ættmennum mínum og frelsað einhverja þeirra. 15Fyrst það varð sáttargjörð fyrir heiminn að þeim var hafnað, hvað verður þá upptaka þeirra annað en líf af dauðum? 16Ef frumgróðinn er heilagur er einnig deigið það. Og ef rótin er heilög eru einnig greinarnar það.
17En þótt nokkrar af greinunum hafi verið brotnar af og hafir þú sem ert villiolíuviður verið græddur inn í þeirra stað og fáir með öðrum greinum að njóta rótarsafa olíuviðarins, 18skaltu ekki stæra þig gegn hinum. Ef þú gerir það skaltu vita að þú berð ekki rótina heldur rótin þig. 19Þú kannt þá að segja: „Greinarnar voru brotnar af til þess að ég yrði græddur við.“ 20Rétt er það, þær voru brotnar af vegna vantrúar en vegna trúar þinnar stenst þú. Hreyktu þér ekki upp, varaðu þig heldur. 21Hafi Guð ekki þyrmt hinum náttúrulegu greinum mun hann ekki heldur þyrma þér. 22Sjá hér bæði gæsku Guðs og strangleika. Hann er strangur við þá sem féllu en gæskuríkur við þig ef þú treystir áfram gæsku hans. Annars verður þú einnig af höggvinn. 23En hinir verða og græddir við, ef þeir láta af vantrú sinni, því að megnugur er Guð þess að græða þá við á ný. 24Þú varst höggvinn af þeim villta olíuviði sem þú ert að eðli til sprottinn af og varst gagnstætt eðli náttúrunnar græddur við ræktaðan olíuvið. Hve miklu fremur munu þá þessar náttúrulegu greinar verða græddar við sinn eigin olíuvið?
Ísrael mun frelsast
25Ég vil, bræður mínir og systur,#11.25 Orðrétt: bræður mínir. að þið varist að ofmeta eigið hyggjuvit. Því vil ég að þið þekkið þennan leyndardóm: Nokkur hluti Ísraels er forhertur orðinn og það varir uns allir heiðingjar eru komnir inn. 26En þá mun allur Ísrael frelsast eins og ritað er: „Frá Síon mun frelsarinn koma og útrýma guðleysi frá Jakob. 27Og þetta er sáttmáli minn við þá þegar ég tek burt syndir þeirra.“
28Í ljósi fagnaðarerindisins eru þeir óvinir Guðs. Það varð til þess að þið fenguð að heyra fagnaðarerindið. En í ljósi útvalningar sinnar eru þeir elskaðir sakir forfeðranna. 29Guð iðrar ekki náðargjafa sinna og köllunar. 30Þið voruð fyrrum óhlýðin Guði en hafið nú hlotið miskunn vegna óhlýðni þeirra. 31Eins hafa þeir nú orðið óhlýðnir svo að þið hlytuð miskunn til þess að þeim mætti einnig verða miskunnað. 32Guð hefur gefið alla menn óhlýðninni á vald til þess að hann geti miskunnað öllum.
33Hvílíkt djúp ríkdóms, speki og þekkingar Guðs! Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans!
34Hver hefur þekkt huga Drottins?
Eða hver hefur verið ráðgjafi hans?
35Hver hefur að fyrra bragði gefið honum
og átt að fá það endurgoldið?
36Frá honum, fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in