Rómverjabréfið 12
12
Sönn og rétt guðsdýrkun
1Því brýni ég ykkur, systkin,#12.1 Orðrétt: bræður. að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi. 2Fylgið ekki háttsemi þessa heims. Látið heldur umbreytast með hinu nýja hugarfari og lærið svo að skilja hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.
3Fyrir þá náð sem mér er gefin segi ég ykkur öllum: Enginn hugsi hærra um sjálfan sig en hugsa ber heldur í réttu hófi, og hver og einn haldi sér við þann mæli trúar sem Guð hefur úthlutað honum.
4Við höfum á einum líkama marga limi en limirnir hafa ekki allir sama starfa. 5Eins erum við, þótt mörg séum, einn líkami í Kristi en hvert um sig annars limir. 6Við eigum margvíslegar náðargáfur samkvæmt þeirri náð sem Guð hefur gefið. Sé það spádómsgáfa þá notum hana í samræmi við trúna, 7sé það þjónustustarf skal gegna því, sé það kennsla skal sinna henni, 8sá sem hvetja skal geri það, sá sem gefur sé örlátur. Sá sem veitir forstöðu sé kostgæfinn og sá sem vinnur miskunnarverk geri það með gleði.
9Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða. 10Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu. 11Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. 12Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni. 13Takið þátt í þörfum heilagra. Leggið stund á gestrisni.
14Blessið þá er ofsækja ykkur. Blessið en bölvið ekki. 15Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. 16Berið sama hug til allra, verið ekki stórlát, umgangist fúslega lítilmagna. Oftreystið ekki eigin hyggindum. 17Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. 18Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi. 19Leitið ekki hefnda sjálf, mín elskuðu, látið reiði Guðs um að refsa eins og ritað er: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,“ segir Drottinn. 20En „ef óvin þinn hungrar þá gef honum að eta, ef hann þyrstir þá gef honum að drekka. Með því að gera þetta safnar þú glóðum elds á höfuð honum.“ 21Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.
Currently Selected:
Rómverjabréfið 12: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007