YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 5

5
Í byggð Gerasena
1Þeir komu nú yfir um vatnið í byggð Gerasena. 2Og um leið og Jesús sté úr bátnum kom maður á móti honum frá gröfunum, haldinn óhreinum anda. 3Hann hafðist við í gröfunum og enginn gat lengur bundið hann, ekki einu sinni með hlekkjum. 4Oft hafði hann verið fjötraður á fótum og höndum en hann braut jafnóðum af sér hlekkina og sleit fjötrana og gat enginn ráðið við hann. 5Allar nætur og daga var hann í gröfunum eða á fjöllum, æpti og lamdi sig grjóti.
6Þegar hann sá Jesú álengdar hljóp hann og féll fram fyrir honum 7og æpti hárri röddu: „Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs Hins hæsta? Ég bið þig í Guðs nafni, kvel þú mig eigi!“ 8Því að Jesús hafði sagt við hann: „Þú óhreini andi, far út af manninum.“
9Jesús spurði hann þá: „Hvað heitir þú?“
Hinn svaraði: „Hersing heiti ég, við erum margir.“ 10Og hann bað Jesú ákaft að senda þá ekki brott úr héraðinu.
11En þar í fjallinu var mikil svínahjörð á beit. 12Og þeir báðu hann: „Send okkur í svínin, lát okkur fara í þau!“ 13Hann leyfði þeim það og fóru þá óhreinu andarnir úr manninum og í svínin og hjörðin, nær tveim þúsundum, ruddist fram af bröttum árbakkanum í vatnið og drukknaði þar.
14En hirðarnir flýðu og sögðu tíðindin í borginni og sveitinni. Menn fóru þá að sjá hvað gerst hafði, 15komu til Jesú og sáu óða manninn, sem hersingin hafði verið í, sitja þar klæddan og heilvita. Og þeir urðu hræddir.
16En sjónarvottar sögðu þeim hvað fram hafði farið við óða manninn og frá svínunum. 17Og þeir tóku að biðja Jesú að fara burt úr héruðum þeirra.
18Þá er Jesús sté í bátinn bað sá er læknaður hafði verið að fá að vera með honum.
19En Jesús leyfði honum það eigi, heldur sagði: „Far heim til þín og þinna og seg þeim hve mikið Drottinn hefur gert fyrir þig og verið þér miskunnsamur.“
20Hann fór og tók að kunngjöra í Dekapólis hve mikið Jesús hafði gert fyrir hann og undruðust það allir.
Trú þú aðeins
21Þegar Jesús kom aftur yfir um á bátnum safnaðist að honum mikill mannfjöldi þar sem hann var við vatnið. 22Þar kom og einn af samkundustjórunum, Jaírus að nafni, og er hann sá Jesú féll hann til fóta honum, 23bað hann ákaft og sagði: „Dóttir mín litla er að dauða komin. Kom og legg hendur yfir hana að hún læknist og lifi.“
24Jesús fór með honum. Og mikill mannfjöldi fylgdi honum og var þröng um hann.
25Þar var kona sem hafði haft blóðlát í tólf ár. 26Hún hafði orðið margt að þola hjá mörgum læknum, kostað til aleigu sinni en engan bata fengið, öllu heldur versnað. 27Hún heyrði um Jesú og kom nú í mannþrönginni að baki honum og snart klæði hans. 28Hún hugsaði: „Ef ég fæ aðeins snert klæði hans mun ég heil verða.“
29Jafnskjótt þvarr blóðlát hennar og hún fann það á sér að hún var heil af meini sínu. 30Jesús fann þegar á sjálfum sér að kraftur hafði farið út frá honum og hann sneri sér við í mannþrönginni og sagði: „Hver snart klæði mín?“
31Lærisveinar hans sögðu við hann: „Þú sérð að mannfjöldinn þrengir að þér og spyrð þó: Hver snart mig?“
32Jesús litaðist um til að sjá hver þetta hefði gert 33en konan, sem vissi hvað fram við sig hafði farið, kom hrædd og skjálfandi, féll til fóta honum og sagði honum allan sannleikann. 34Jesús sagði við hana: „Dóttir, trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði og ver heil meina þinna.“
35Meðan hann var að segja þetta koma menn heiman frá samkundustjóranum og segja: „Dóttir þín er látin, hví ómakar þú meistarann lengur?“
36Jesús heyrði hvað þeir sögðu en gaf ekki um, heldur sagði við samkundustjórann: „Óttast ekki, trú þú aðeins.“ 37Og nú leyfði hann engum að fylgja sér nema Pétri og þeim bræðrum Jakobi og Jóhannesi. 38Þeir koma að húsi samkundustjórans. Þar sér hann að allt er í uppnámi, grátur mikill og kveinan. 39Jesús gengur inn og segir: „Hví hafið þið svo hátt og grátið? Barnið er ekki dáið, það sefur.“
40En menn hlógu að honum. Þá lét Jesús alla fara út og tók með sér föður barnsins og móður og þá sem með honum voru og gekk þar inn sem barnið var. 41Og hann tók hönd barnsins og sagði: „Talíþa kúm!“ Það þýðir: „Stúlka litla, ég segi þér, rís upp!“
42Jafnskjótt reis stúlkan upp og fór að ganga um en hún var tólf ára. Og menn urðu frá sér numdir af undrun. 43En Jesús lagði ríkt á við þá að láta engan vita þetta og bauð að gefa henni að eta.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in