Matteusarguðspjall 22
22
Boðið til brúðkaups
1Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: 2„Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. 3Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en þeir vildu ekki koma. 4Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: Segið boðsgestunum: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið. 5En boðsgestirnir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns 6en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.
7Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra. 8Síðan segir hann við þjóna sína: Brúðkaupsveislan er tilbúin en boðsgestirnir voru ekki verðugir. 9Farið því út á stræti og torg og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þið finnið. 10Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.
11Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum. 12Hann segir við hann: Vinur, hvernig ert þú hingað kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum? Maðurinn gat engu svarað. 13Konungur sagði þá við þjóna sína: Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna. 14Því að margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“
Keisarinn og Guð
15Þá gengu farísearnir burt og tóku saman ráð sín hvernig þeir gætu flækt Jesú í orðum. 16Þeir senda til hans lærisveina sína ásamt Heródesarsinnum og þeir segja: „Meistari, við vitum að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika, þú hirðir ekki um álit neins enda gerir þú þér engan mannamun. 17Seg okkur því hvað þér líst? Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki?“
18Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: „Hvers vegna leggið þið snörur fyrir mig, hræsnarar? 19Sýnið mér peninginn sem goldinn er í skatt.“
Þeir fengu honum denar. 20Hann spyr: „Hvers mynd og nafn er á peningnum?“
21Þeir svara: „Keisarans.“ Hann segir: „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
22Þegar þeir heyrðu þetta undruðust þeir, yfirgáfu hann og gengu burt.
Guð lifenda
23Sama dag komu saddúkear til Jesú, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við hann: 24„Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus þá skal bróðir hans ganga að eiga konu hans og vekja honum niðja. 25Hér voru með okkur sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist og dó. Hann átti engan niðja og eftirlét því bróður sínum konuna. 26Eins varð um næsta og þriðja og þá alla sjö. 27Síðast allra dó konan. 28Kona hvers þeirra sjö verður hún í upprisunni? Allir höfðu þeir átt hana.“
29En Jesús svaraði þeim: „Þið villist því að þið þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs. 30Í upprisunni kvænast menn hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himni. 31En um upprisu dauðra ættuð þið að hafa lesið það sem Guð segir við ykkur: 32Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda.“
33En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög kenningu hans.
Hið æðsta boðorð
34Þegar farísear heyrðu að Jesús hafði gert saddúkea orðlausa komu þeir saman. 35Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi reyna hann og spurði: 36„Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?“
37Jesús svaraði honum: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. 38Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. 39Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. 40Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.“
Kristur er Drottinn
41Þegar farísearnir voru saman komnir spurði Jesús þá: 42„Hvað virðist ykkur um Krist? Hvers son er hann?“
Þeir svara: „Davíðs.“
43Hann segir: „Hvernig getur þá Davíð, innblásinn andanum, kallað hann drottin? Hann segir:
44Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.
45Fyrst Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
46Enginn gat svarað Jesú einu orði og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 22: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007