YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 21

21
Jesú fagnað
1Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér. 3Ef einhver hefur orð um, þá svarið: Drottinn#21.3 Eða: Eigandi þeirra. þarf þeirra við, og mun hann jafnskjótt senda þau.“
4Þetta varð svo að rættist það sem spámaðurinn sagði fyrir um:
5Segið dótturinni Síon:
Konungur þinn kemur til þín,
hógvær er hann og ríður asna,
fola undan áburðargrip.
6Lærisveinarnir fóru og gerðu sem Jesús hafði boðið þeim, 7komu með ösnuna og folann og lögðu á þau klæði sín en Jesús steig á bak. 8Fjöldamargir breiddu klæði sín á veginn en aðrir hjuggu greinar af trjánum og lögðu á veginn. 9Og múgur sá sem á undan fór og eftir fylgdi hrópaði: „Hósanna syni Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!“
10Þegar Jesús kom inn í Jerúsalem varð öll borgin í uppnámi og menn spurðu: „Hver er hann?“
11Fólkið svaraði: „Það er spámaðurinn Jesús frá Nasaret í Galíleu.“
Hús mitt bænahús
12Þá gekk Jesús í helgidóminn og rak út alla sem voru að selja þar og kaupa, hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna 13og mælti við þá: „Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús en þið gerið það að ræningjabæli.“
14Blindir og haltir komu til Jesú í helgidóminum og hann læknaði þá. 15Æðstu prestarnir og fræðimennirnir sáu dásemdarverkin sem hann gerði og heyrðu börnin hrópa í helgidóminum: „Hósanna syni Davíðs!“ Þeir urðu gramir við 16og sögðu við Jesú: „Heyrir þú hvað þau segja?“
Jesús svaraði þeim: „Já, hafið þið aldrei lesið þetta: Af munni barna og brjóstmylkinga býrð þú þér lof?“
17Hann fór frá þeim og úr borginni til Betaníu og hafði þar náttstað.
Fíkjutré við veginn
18Árla morguns hélt Jesús aftur til borgarinnar og kenndi hungurs. 19Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann segir við það: „Aldrei framar vaxi ávöxtur á þér að eilífu.“ Og fíkjutréð visnaði þegar í stað.
20Lærisveinarnir sáu þetta, undruðust og sögðu: „Hvernig gat fíkjutréð visnað svo fljótt?“
21Jesús svaraði þeim: „Sannlega segi ég ykkur: Ef þið eigið trú og efist ekki getið þið ekki aðeins gert slíkt sem fram kom við fíkjutréð. Þið gætuð enda sagt við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og svo mundi fara. 22Ef þið trúið munuð þið öðlast allt sem þið biðjið.“
Með hvaða valdi?
23Jesús gekk í helgidóminn. Þá komu æðstu prestarnir og öldungarnir til hans þar sem hann var að kenna og spurðu: „Með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver gaf þér þetta vald?“
24Jesús svaraði þeim: „Ég vil og leggja eina spurningu fyrir ykkur. Ef þið svarið mér mun ég segja ykkur með hvaða valdi ég geri þetta. 25Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn?“ Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 26Ef við segjum: Það voru menn, megum við óttast fólkið því að allir telja Jóhannes spámann.“ 27Og þeir svöruðu Jesú: „Við vitum það ekki.“
Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“
Tveir synir
28Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. 29Hann svaraði: Það vil ég ekki. En eftir á sá hann sig um hönd og fór. 30Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: Já, herra, en fór hvergi. 31Hvor þeirra gerði vilja föðurins?“
Þeir svara: „Sá fyrri.“
Þá mælti Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan ykkur inn í Guðs ríki. 32Því að Jóhannes kom til ykkar og vísaði ykkur á réttan veg og þið trúðuð honum ekki en tollheimtumenn og skækjur trúðu honum. Það sáuð þið en tókuð samt ekki sinnaskiptum og trúðuð honum.“
Vondir vínyrkjar
33Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi. 34Þegar ávaxtatíminn nálgaðist sendi hann þjóna sína til vínyrkjanna að fá ávöxt sinn. 35En vínyrkjarnir tóku þjóna hans, börðu einn, drápu annan og grýttu hinn þriðja. 36Aftur sendi hann aðra þjóna, fleiri en þá fyrri, og eins fóru þeir með þá. 37Síðast sendi hann til þeirra son sinn og sagði: Þeir munu virða son minn. 38Þegar vínyrkjarnir sáu soninn sögðu þeir sín á milli: Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann og náum arfi hans. 39Og þeir tóku hann, köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.
40Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera við vínyrkja þessa þegar hann kemur?“
41Þeir svara: „Hann mun vægðarlaust tortíma þeim vondu mönnum og selja víngarðinn öðrum vínyrkjum á leigu sem gjalda honum ávöxtinn á réttum tíma.“
42Og Jesús segir við þá: „Hafið þið aldrei lesið í ritningunum:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
Þetta er verk Drottins
og undursamlegt í augum vorum.
43Þess vegna segi ég ykkur: Guðs ríki verður tekið frá ykkur og gefið þeirri þjóð sem ber ávexti þess. 44[Sá sem fellur á þennan stein mun sundur molast og þann sem hann fellur á mun hann sundur merja.]“#21.44 Vantar í sum handrit.
45Þegar æðstu prestarnir og farísearnir heyrðu dæmisögur Jesú skildu þeir að hann átti við þá. 46Þeir vildu taka hann höndum en óttuðust fólkið þar eð menn töldu hann vera spámann.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in