Matteusarguðspjall 20
20
Í víngarði
1Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. 2Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn. 3Síðan gekk hann út um dagmál#20.3 Orðrétt: um þriðju stundu, þ.e. kl. níu að morgni. og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa. 4Hann sagði við þá: Farið þið einnig í víngarðinn og ég mun greiða ykkur sanngjörn laun. 5Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón#20.5 Orðrétt: um sjöttu og níundu stundu, þ.e. kl. tólf á hádegi og þrjú eftir hádegi. og gerði sem fyrr. 6Og á elleftu stundu#20.6 Þ.e. kl. fimm síðdegis. fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: Hví hímið þið hér iðjulausir allan daginn? 7Þeir svara: Enginn hefur ráðið okkur. Hann segir við þá: Farið þið einnig í víngarðinn.
8Þegar kvöld var komið sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu. 9Nú komu þeir sem ráðnir voru á elleftu stundu og fengu hver sinn denar. 10Þegar þeir fyrstu komu bjuggust þeir við að fá meira en fengu sinn denarinn hver. 11Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum. 12Þeir sögðu: Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund og þú gerir þá jafna okkur er höfum borið hita og þunga dagsins.
13Hann sagði þá við einn þeirra: Vinur, ekki geri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar? 14Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér. 15Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því að ég er góðgjarn?
16Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.“
Til Jerúsalem
17Jesús hélt nú upp til Jerúsalem og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá: 18„Nú förum við upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða 19og framselja hann heiðingjum svo að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa.“
Til að þjóna og gefa
20Þá kom móðir þeirra Sebedeussona til Jesú með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar.
21Jesús spyr hana: „Hvað viltu?“
Hún segir: „Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu hvorn til sinnar handar, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri.“
22Jesús svarar: „Þið vitið ekki hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik sem ég á að drekka?“
Þeir segja við hann: „Það getum við.“
23Hann segir við þá: „Kaleik minn munuð þið drekka en ég ræð því ekki hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim sem faðir minn hefur ákveðið.“
24Þegar hinir tíu heyrðu þetta gramdist þeim við bræðurna tvo.
25En Jesús kallaði þá til sín og mælti: „Þið vitið að þeir sem ráða fyrir þjóðum drottna yfir þeim og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu. 26En eigi sé svo meðal ykkar heldur sé sá sem mikill vill verða meðal ykkar þjónn ykkar. 27Og sá sem vill fremstur vera meðal ykkar sé þræll ykkar. 28Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.“
Snart augu þeirra
29Þegar þeir fóru frá Jeríkó fylgdi mikill mannfjöldi Jesú. 30Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu að þar færi Jesús hrópuðu þeir: „Drottinn, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!“ 31Fólkið hastaði á þá að þeir þegðu en þeir hrópuðu því meir: „Drottinn, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!“
32Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“
33Þeir mæltu: „Drottinn, gefðu okkur sjón.“
34Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 20: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007