YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 19

19
Það sem Guð hefur tengt
1Þegar Jesús hafði lokið þessum orðum fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar. 2Fjöldi manna fylgdi honum og þar læknaði hann þá.
3Þá komu farísear til Jesú og vildu reyna hann. Þeir spurðu: „Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?“
4Jesús svaraði: „Hafið þið eigi lesið að skaparinn gerði þau frá upphafi karl og konu 5og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og búa með konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður.#19.5 Orðrétt: eitt hold, sem þýðir einn maður, eind. 6Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman má eigi maðurinn sundur skilja.“
7Þeir segja við Jesú: „Hvers vegna bauð Móse þá að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?“
8Hann svarar: „Móse leyfði ykkur að skilja við konur ykkar vegna þverúðar ykkar en frá upphafi var þetta eigi þannig. 9Ég segi ykkur: Sá sem skilur við konu sína, nema sakir hórdóms, og kvænist annarri drýgir hór.“
10Þá sögðu lærisveinar hans: „Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast.“
11Jesús svaraði þeim: „Það er ekki á allra færi að skilja þennan boðskap heldur þeirra einna sem það er gefið. 12Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, suma hafa menn gert vanhæfa, sumir hafa sjálfir gert sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli sem höndlað fær.“
Leyfið börnunum
13Þá færðu menn börn til Jesú að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim en lærisveinar hans átöldu þá. 14En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.“
15Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.
Að öðlast eilíft líf
16Þá kom maður til Jesú og spurði: „Meistari, hvað gott á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
17Jesús sagði við hann: „Hví spyr þú mig um hið góða? Aðeins einn er góður. Ef þú vilt inn ganga til lífsins þá haltu boðorðin.“
18Hann spurði: „Hver?“
Jesús sagði: „Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, 19heiðra föður þinn og móður og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“
20Þá sagði ungi maðurinn: „Alls þessa hef ég gætt. Hvers er mér enn vant?“
21Jesús sagði við hann: „Ef þú vilt vera fullkominn skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum og þú munt fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér.“
22Þegar ungi maðurinn heyrði þessi orð fór hann brott hryggur enda átti hann miklar eignir.
23En Jesús sagði við lærisveina sína: „Sannlega segi ég ykkur: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki. 24Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
25Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta urðu þeir steini lostnir og sögðu: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
26Jesús horfði á þá og sagði: „Menn hafa engin ráð til þess en Guði er ekkert um megn.“
27Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“
28Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu munuð þið, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. 29Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá allt hundraðfalt aftur og öðlast eilíft líf. 30En margir hinir fyrstu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in