Jakobsbréfið 5
5
Til auðmanna
1Hlustið á, þið auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum sem yfir ykkur munu koma. 2Auður ykkar er orðinn fúinn og klæði ykkar eru orðin mölétin, 3gull ykkar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða ykkur til vitnis og éta hold ykkar eins og eldur. Þið hafið safnað fjársjóðum á síðustu dögum. 4Launin, sem þið hafið haft af verkamönnunum sem slógu lönd ykkar, hrópa og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna. 5Þið hafið lifað í sællífi á jörðinni og í óhófi. Þið hafið alið hjörtu ykkar á slátrunardegi. 6Þið hafið sakfellt og drepið hinn réttláta. Hann veitir ykkur ekki viðnám.
Þreyið og biðjið
7Þreyið því, systkin,#5.7 Orðrétt: bræður. þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið haustregn og vorregn. 8Verið þið einnig þolinmóð, styrkið hjörtu ykkar því að Drottinn er í nánd.
9Kvartið ekki hvert yfir öðru, systkin,#5.9 Orðrétt: hver yfir öðrum, bræður. svo að þið verðið ekki dæmd. Dómarinn stendur fyrir dyrum. 10Bræður og systur,#5.10 Orðrétt: Bræður. takið spámennina til fyrirmyndar sem talað hafa í nafni Drottins og liðið illt með þolinmæði. 11Því við teljum þá sæla sem þolgóðir hafa verið. Þið hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið hvaða lyktir Drottinn gerði á högum hans. Drottinn er mjög miskunnsamur og líknsamur.
12En umfram allt, bræður mínir og systur,#5.12 Orðrétt: bræður mínir. sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina né nokkurn annan eið. En já ykkar sé já, nei ykkar sé nei, svo að Guð dæmi ykkur ekki.
13Líði nokkrum illa ykkar á meðal, þá biðji hann. Liggi vel á einhverjum, þá syngi hann lofsöng. 14Sé einhver sjúkur ykkar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðja fyrir honum. 15Trúarbænin mun gera hinn sjúka heilan og Drottinn mun reisa hann á fætur. Þær syndir, sem hann kann að hafa drýgt, verða honum fyrirgefnar. 16Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru til þess að þið verðið heilbrigð. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.
17Elía var maður eins og við. Hann bað þess heitt að ekki skyldi rigna og það rigndi ekki yfir landið í þrjú ár og sex mánuði. 18Hann bað aftur og himinninn gaf regn og jörðin bar sinn ávöxt.
19Bræður mínir og systur,#5.19 Orðrétt: Bræður mínir. ef einhver meðal ykkar villist frá sannleikanum og einhver snýr honum aftur, 20þá viti hann að hver sem snýr syndara frá villu vegar hans mun frelsa sálu hans frá dauða og bæta fyrir fjölda synda.
Currently Selected:
Jakobsbréfið 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007