YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Pétursbréf 1

1
Kveðja
1Pétur postuli Jesú Krists heilsar hinum útvöldu sem lifa sem útlendingar dreifðir meðal þjóðanna í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Biþýníu, 2en útvaldir samkvæmt fyrirvitund Guðs föður og helgaðir af anda hans til að hlýða Jesú Kristi og hreinsast með blóði hans.
Náð og friður margfaldist með yður.
Lifandi von
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum 4og veitt oss óforgengilega, flekklausa og ófölnandi arfleifð sem yður er geymd á himnum. 5Kraftur Guðs varðveitir yður sem trúið til þess að þér öðlist hjálpræðið sem albúið bíður þess að opinberast á efsta degi.
6Fagnið því þótt þið nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. 7Það er til þess að trúfesti ykkar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó er reynt í eldi, geti orðið ykkur til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists. 8Þið hafið ekki séð hann en elskið hann þó. Þið hafið hann ekki nú fyrir augum ykkar en trúið samt á hann og fagnið með óumræðilegri og dýrlegri gleði 9þegar þið eruð að ná takmarki trúar ykkar, frelsun sálna ykkar.
10Þessa frelsun könnuðu spámennirnir og rannsökuðu vandlega þegar þeir töluðu um þá náð sem ykkur mundi hlotnast. 11Þeir rannsökuðu til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem í þeim bjó, benti þá er hann vitnaði fyrir fram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir. 12En þeim var opinberað að eigi væri það fyrir sjálfa þá heldur fyrir ykkur að þeir þjónuðu að þessu sem ykkur er nú kunngjört af þeim sem boðuðu ykkur fagnaðarerindið í heilögum anda sem er sendur frá himni. Inn í þetta fýsir jafnvel englana að skyggnast.
Verið heilög
13Gerið því hugi ykkar viðbúna og verið vakandi. Bindið alla von ykkar við þá náð sem ykkur mun veitast við opinberun Jesú Krists. 14Verið eins og hlýðin börn og látið líferni ykkar ekki framar mótast af þeim girndum er þið áður létuð stjórnast af í vanvisku ykkar. 15Verðið heldur sjálf heilög í öllu dagfari ykkar eins og sá er heilagur sem ykkur hefur kallað. 16Ritað er: „Verið heilög því ég er heilagur.“
17Fyrst þið ákallið þann sem föður er dæmir án manngreinarálits eftir verkum hvers og eins, þá gangið fram í guðsótta útlegðartíma ykkar. 18Þið vitið að Guð frelsaði ykkur ekki með forgengilegum hlutum, silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun ykkar er þið höfðuð að erfðum tekið frá forfeðrum ykkar, 19heldur með dýrmætu blóði Krists, hins lýtalausa og óflekkaða lambs. 20Guð útvaldi hann fyrir sköpun heims en hann var opinberaður vegna ykkar í lok tímanna. 21Fyrir hann trúið þið á Guð er vakti hann upp frá dauðum og gaf honum dýrð. Því er trú ykkar einnig von til Guðs.
22Með því að hlýða sannleikanum hafið þið hreinsað ykkur og getið því borið hræsnislausa elsku hvert til annars. Haldið því áfram að elska hvert annað af heilu#1.22 Annar lesháttur: hreinu. hjarta. 23Þið eruð endurfædd, ekki af forgengilegu sæði heldur óforgengilegu, fyrir orð Guðs sem lifir og varir. 24Því að:
Allir menn eru sem gras
og öll vegsemd þeirra sem blóm á grasi,
grasið skrælnar og blómið fellur.
25En orð Drottins varir að eilífu.
Og þetta orð er fagnaðarerindið sem ykkur hefur verið boðað.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in