Jakobsbréfið 3
3
Að stýra tungu sinni
1Verðið eigi mörg kennarar, bræður mínir og systur.#3.1 Orðrétt: bræður mínir. Þið vitið að við munum fá þyngri dóm. 2Öll hrösum við margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn á öllum líkama sínum. 3Ef við leggjum hestunum beisli í munn til þess að þeir hlýði okkur, þá getum við stýrt öllum líkama þeirra. 4Sjáið einnig skipin, svo stór sem þau eru og rekin af hörðum vindum. Þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill. 5Þannig er einnig tungan lítill limur en lætur mikið yfir sér.
Sjáið hversu lítill neisti getur kveikt í miklum skógi. 6Tungan er líka eldur. Tungan er ranglætisheimur meðal lima okkar. Hún flekkar allan manninn og kveikir í allri tilveru hans en er sjálf tendruð af helvíti. 7Allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikindi og sjávardýr má temja og hafa mennirnir tamið 8en tunguna getur enginn maður tamið, þessa óhemju sem er full af banvænu eitri. 9Með henni vegsömum við Drottin okkar og föður og með henni formælum við mönnum sem skapaðir eru í líkingu Guðs. 10Af sama munni gengur fram blessun og bölvun. Þetta má ekki svo vera, bræður mínir og systur.#3.10 Orðrétt: bræður mínir. 11Gefur sama lindin bæði ferskt og beiskt vatn? 12Mun fíkjutré, bræður mínir og systur,#3.12 Orðrétt: bræður. geta gefið af sér ólífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið ferskt vatn.
Spekin að ofan
13Hver er vitur og skynsamur á meðal ykkar? Hann sýni það með því að vera hóglátur og vitur í allri breytni sinni. 14En ef beiskur ofsi og eigingirni býr í hjarta ykkar, þá stærið ykkur ekki og ljúgið ekki. 15Sú speki kemur ekki að ofan heldur er hún jarðnesk, andlaus, djöfulleg. 16Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns spilling. 17En sú speki sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, því næst friðsöm, ljúfleg, sáttgjörn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus. 18En friðflytjendur uppskera réttlæti og frið.
Currently Selected:
Jakobsbréfið 3: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007