YouVersion Logo
Search Icon

Jakobsbréfið 2

2
Mismunið ekki mönnum
1Bræður mínir og systur,#2.1 Orðrétt: Bræður mínir. þið sem trúið á Jesú Krist, dýrðardrottin okkar, farið ekki í manngreinarálit. 2Nú kemur maður inn í samkundu ykkar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum. 3Ef öll athygli ykkar beinist að þeim sem skartklæðin ber og þið segið: „Settu þig hérna í gott sæti!“ en segið við fátæka manninn: „Stattu þarna eða settu þig á gólfið við fótskör mína,“ 4hafið þið þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með illum hvötum?
5Heyrið, elskuð systkin.#2.5 Orðrétt: bræður mínir elskaðir. Hefur Guð ekki útvalið þá sem eru fátækir í augum heimsins til þess að þeir verði auðugir í trú og erfi ríkið er hann hefur heitið þeim sem elska hann? 6En þið hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku sem undiroka ykkur og draga ykkur fyrir dómstóla? 7Eru það ekki þeir sem lastmæla hinu góða nafni sem nefnt var yfir ykkur?
8Ef þið uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig,“ þá gerið þið vel. 9En ef þið farið í manngreinarálit þá drýgið þið synd og lögmálið sannar upp á ykkur að þið séuð brotamenn. 10Þótt einhver héldi allt lögmálið en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess. 11Því sá sem sagði: „Þú skalt ekki hórdóm drýgja,“ hann sagði líka: „Þú skalt ekki morð fremja.“ En þó að þú drýgir ekki hór en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið. 12Talið því og breytið eins og þeir er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins. 13Því að þeim sem ekki auðsýndi miskunn verður ekki sýnd nein miskunn í dóminum. Í dóminum má miskunnsemin sín mest.
Trú og verk
14Hvað stoðar það, bræður mínir og systur,#2.14 Orðrétt: bræður mínir. þótt einhver segist hafa trú en sýnir það eigi í verki? Mun trúin geta frelsað hann? 15Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi 16og eitthvert ykkar segði við þau: „Farið í friði, vermið ykkur og mettið!“ en þið gefið þeim ekki það sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það? 17Eins er líka trúin ein og sér dauð vanti hana verkin.
18En nú segir einhver: „Einn hefur trú, annar verkin.“ Sýn mér þá trú þína án verkanna og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum. 19Þú trúir að Guð sé einn. Þú gerir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast. 20Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast að trúin er ónýt#2.20 Annar lesháttur: dauð. án verkanna? 21Réttlættist ekki Abraham, faðir okkar, af verkum er hann lagði son sinn Ísak á altarið? 22Þú sérð að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum. 23Og ritningin rættist sem segir: „Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað,“ og hann var kallaður vinur Guðs. 24Þið sjáið að maðurinn réttlætist af verkum en ekki af trúnni einni saman.
25Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið?
26Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.

Currently Selected:

Jakobsbréfið 2: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in