YouVersion Logo
Search Icon

Jesaja 36

36
Sögukaflar
Sanheríb ógnar Júda
1Svo bar við á fjórtánda stjórnarári Hiskía konungs að Sanheríb Assýríukonungur réðst gegn öllum víggirtum borgum í Júda og tók þær. 2Assýríukonungur sendi því næst yfirskenkjara sinn með mikið herlið frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Hann nam staðar hjá vatnsleiðslunni úr efri tjörninni við veginn út á þvottavöllinn. 3Eljakím Hilkíason hirðstjóri kom út til hans ásamt Sebna ríkisritara og Jóak Asafssyni kallara.
4Yfirskenkjarinn sagði við þá: „Segið Hiskía: Svo segir stórkonungurinn, konungur Assýríu: Hvað er það sem þú styðst við? 5Heldur þú að orðin ein dugi sem ráð og styrkur í hernaði? Á hvern treystirðu úr því að þú hefur gert uppreisn gegn mér? 6Þú treystir sjálfsagt á þennan brotna reyrstaf, Egyptaland, sem stingst inn í hönd þess sem styður sig við hann og fer í gegnum hana. Þannig reynist faraó, konungur Egyptalands, hverjum þeim sem treystir á hann. 7En ef þú segir við mig: Vér treystum Drottni, Guði vorum, þá spyr ég: Voru það ekki fórnarhæðir hans og ölturu sem Hiskía lagði af er hann sagði við íbúa Júda og Jerúsalem: Fyrir altarinu í Jerúsalem einu skuluð þér falla fram. 8Nú skaltu veðja við húsbónda minn, Assýríukonung: Ég skal gefa þér tvö þúsund hesta ef þú getur sett á þá riddara. 9Hvernig mun þér takast að reka á flótta nokkurn landstjóra húsbónda míns, jafnvel þann aumasta þeirra, úr því að þú treystir á Egyptaland um stríðsvagna og vagnstjóra? 10Að síðustu: Heldur þú að ég hafi farið til þessa lands gegn vilja Drottins? Nei, það var Drottinn sjálfur sem sagði við mig: Farðu gegn þessu landi og leggðu það í eyði.“
11Þá svöruðu Eljakím, Sebna og Jóak yfirskenkjaranum: „Talaðu arameísku við þjóna þína. Vér skiljum hana. En þú skalt ekki ávarpa oss á hebresku í áheyrn fólksins sem stendur á borgarmúrnum.“
12Þá sagði yfirskenkjarinn: „Heldur þú að húsbóndi minn hafi aðeins sent mig til húsbónda þíns og til þín með þessi skilaboð? Eru þau ekki einmitt til fólksins sem situr þarna á borgarmúrnum og mun ásamt yður neyðast til að leggja sér sinn eigin saur til munns og drekka sitt eigið þvag?“
13Því næst gekk yfirskenkjarinn fram og hrópaði hátt og snjallt á hebresku: „Heyrið orð stórkonungsins, konungs Assýríu: 14Svo segir konungurinn: Látið Hiskía ekki blekkja yður því að hann er ekki fær um að bjarga yður. 15Og látið Hiskía ekki koma yður til að treysta Drottni með því að segja: Drottinn mun áreiðanlega bjarga oss. Þessi borg skal ekki afhent Assýríukonungi. 16Hlustið ekki á Hiskía því að konungur Assýríu segir: Semjið við mig og gangið mér á hönd. Þá mun sérhver yðar geta neytt af eigin vínviði og eigin fíkjutré og drukkið vatn úr eigin brunni 17uns ég kem og flyt yður til lands sem líkist yðar eigin landi. Það er land sem er auðugt af korni og vínberjasafa, brauði og víngörðum. 18Látið Hiskía ekki blekkja yður með því að segja: Drottinn mun bjarga oss. Hefur nokkur guð annarra þjóða bjargað landi sínu úr greipum Assýríukonungs? 19Hvar eru guðir borganna Hamat og Arpad? Hvar eru guðir Sefarvaíms? 20Hverjir af guðum þessara landa hafa bjargað landi sínu úr greipum mínum? Hvernig ætti Drottinn þá að geta bjargað Jerúsalem úr hendi minni?“
21En fólkið þagði og svaraði honum ekki einu orði því að konungurinn hafði sagt: „Svarið honum ekki.“
22Eljakím hirðstjóri gekk þá ásamt Sebna ríkisritara og Jóak Asafssyni kallara í sundurrifnum klæðum til Hiskía og þeir sögðu honum hvað yfirskenkjarinn hafði sagt.

Currently Selected:

Jesaja 36: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in