YouVersion Logo
Search Icon

Jesaja 37

37
Viðbrögð Hiskía konungs
1Þegar Hiskía konungur heyrði þetta reif hann klæði sín, klæddist hærusekk og gekk í hús Drottins. 2Síðan sendi hann Eljakím hirðstjóra, Sebna ríkisritara og öldunga prestanna, klædda hærusekkjum, til Jesaja Amotssonar spámanns 3og skyldu þeir segja við hann: „Svo segir Hiskía: Í dag er dagur neyðar, hirtingar og háðungar. Barnið er komið í burðarliðinn en krafturinn enginn til að fæða. 4Ef til vill hefur Drottinn, Guð þinn, heyrt orð konungsfulltrúans sem Assýríukonungur, húsbóndi hans, lét hann segja til að smána hinn lifandi Guð. Ef til vill mun Drottinn, Guð þinn, senda refsingu fyrir það sem hann heyrði. En bið þú fyrir þeim sem af komast.“
5Þjónar Hiskía konungs komu nú til Jesaja 6og hann sagði við þá: „Þér skuluð segja húsbónda yðar: Svo segir Drottinn: Þú skalt ekki óttast smánaryrðin sem þjónar Assýríukonungs svívirtu mig með. 7Ég mun senda í hann anda og þegar hann heyrir orðróm nokkurn mun hann snúa aftur til lands síns. Síðan læt ég hann falla fyrir sverði í sínu eigin landi.“
Sanheríb ógnar enn
8Yfirskenkjarinn sneri aftur er hann frétti að Assýríukonungur væri farinn frá Lakís og fann hann þar sem hann herjaði á Líbna. 9Er Assýríukonungur frétti að Tírhaka, konungur Kúss, væri lagður af stað í hernað gegn honum gerði hann menn á fund Hiskía með þessi skilaboð: 10„Svo skuluð þér segja við Hiskía, konung í Júda: Láttu ekki þennan guð þinn, sem þú treystir á, blekkja þig svo að þú haldir að Jerúsalem verði ekki látin í hendur Assýríukonungi. 11Þú hlýtur að hafa heyrt hvernig Assýríukonungar hafa farið með öll önnur lönd. Þeir hafa gereytt þau. Heldur þú að þú bjargist? 12Björguðu guðirnir þjóðunum sem forfeður mínir gereyddu? Björguðu þeir Gósan og Haran, Resef og Edensmönnum sem bjuggu í Telassar? 13Hvar er konungur Hamats, hvar er konungur Arpads eða konungarnir í Laír, Sefarvaím, Hena og Íva?“
Bæn Hiskía
14-15Hiskía tók við bréfinu af sendiboðunum. Hann las það, gekk í hús Drottins, breiddi úr því frammi fyrir augliti Drottins og bað: 16„Drottinn allsherjar, Guð Ísraels, þú sem situr í hásæti yfir kerúbunum. Þú einn ert Guð allra konungsríkja veraldar. Það ert þú sem hefur gert himin og jörð. 17Legg við hlustir og heyr. Ljúktu upp augum, Drottinn, og líttu á. Hlýddu á öll orðin sem Sanheríb sendi til að smána hinn lifandi Guð. 18Satt er það, Drottinn, að konungar Assýríu hafa eytt öllum þjóðum og löndum þeirra 19og varpað guðum þeirra á eld. En þeir voru engir guðir heldur handaverk manna úr tré og steini. Þess vegna gátu þeir eytt þeim. 20Drottinn, Guð vor, bjarga oss nú úr greipum hans svo að öll konungsríki veraldar komist að raun um að þú, Drottinn, einn ert Guð.“
Kvæði um Assýríukonung
21Jesaja Amotsson sendi þessi boð til Hiskía: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Þú hefur beðið til mín vegna Sanheríbs Assýríukonungs. 22Þetta er orðið sem Drottinn hefur talað gegn honum:
Hún fyrirlítur þig, hún hæðist að þér,
mærin, dóttirin Síon.
Hún hristir höfuðið yfir þér,
dóttirin Jerúsalem.
23Hvern hefur þú smánað og hvern spottað?
Gegn hverjum hefur þú brýnt raustina,
gegn hverjum hvesst augun?
Gegn Hinum heilaga Ísraels.
24Þú hæddir Drottin af munni þjóna þinna
og sagðir: „Ég hef farið upp á hæstu fjöll,
á efsta tind Líbanons,
með fjölmarga stríðsvagna.
Ég hef höggvið hæstu sedrustrén
og voldugustu kýprustrén.
Ég hef komið inn í innstu fylgsnin
í þéttasta þykkninu.
25Ég hef grafið brunna
og drukkið úr þeim vatn.
Ég hef þurrkað upp allar ár Egyptalands
undir iljum fóta minna.“
26Hefur þú ekki heyrt þetta?
Fyrir löngu kom ég þessu til leiðar,
frá öndverðu ráðgerði ég þetta,
nú hef ég látið það verða.
Þú gerðir víggirtar borgir
að rústum og grjóthrúgum
27svo að íbúum þeirra féllust hendur
og þeir voru niðurlægðir og auðmýktir.
Þeir voru eins og reyr á engi,
eins og nýsprottið grængresi.
Þeir líktust grasi á þaki,
voru sem akur í glóðheitum austanvindi.
28Hvort sem þú situr kyrr,
gengur út eða inn,
þá veit ég það.
29Þar sem þú hefur hamast gegn mér
og öskur þitt hefur borist mér til eyrna
set ég hring í nasir þér og beisli í munn þér:
Ég mun teyma þig aftur
sama veg og þú komst.
30Þetta skal vera þér tákn:
Á þessu ári skuluð þér
nærast á sjálfsánu korni,
næsta ár á villtu korni
en þriðja árið skuluð þér sá og uppskera,
planta víngarða
og neyta ávaxta þeirra.
31Þeir sem skildir verða eftir af Júda ættkvísl
og komast af
munu aftur skjóta rótum í jörðu
og bera ávöxt hið efra.
32Frá Jerúsalem koma þeir sem eftir verða
og frá Síonarfjalli þeir sem frelsast.
Brennandi ákafi Drottins allsherjar
mun koma þessu til leiðar.
33Þess vegna segir Drottinn um Assýríukonung:
Hann kemur ekki inn í þessa borg,
skýtur ekki einni ör þangað.
Hann ber hvorki skjöld gegn henni
né hleður að henni virkisvegg.
34Hann mun snúa aftur sama veg og hann kom,
inn í þessa borg kemur hann ekki, segir Drottinn.
35Ég vil vernda þessa borg og frelsa hana
vegna sjálfs mín og vegna Davíðs, þjóns míns.
Björgun borgarinnar
36Þá fór engill Drottins út og deyddi hundrað áttatíu og fimm þúsund menn í herbúðum Assýringa. Um fótaferð morguninn eftir voru þeir allir liðin lík. 37Sanheríb Assýríukonungur lagði þá af stað, sneri aftur til Níníve og hélt þar kyrru fyrir. 38En svo bar við einhverju sinni þegar hann var að biðjast fyrir í húsi Nísroks, guðs síns, að Adrammelek og Sareser, synir hans, hjuggu hann til bana með sverði. Þeir komust undan á flótta til Araratlands. Asarhaddon, sonur Sanheríbs, varð konungur eftir hann.

Currently Selected:

Jesaja 37: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in