YouVersion Logo
Search Icon

Jesaja 12

12
Þakkargjörð hinna endurleystu
1Á þeim degi skaltu segja:
Ég vegsama þig, Drottinn. Þú varst mér reiður
en þér hvarf reiðin og þú huggaðir mig.
2Sjá, Guð er hjálp mín,
ég er öruggur og óttast ekki.
Því að Drottinn er vörn mín og lofsöngur,#12.2 Önnur hugsanleg þýðing: vörn mín og styrkur.
hann kom mér til hjálpar.
3Þér munuð með fögnuði vatni ausa#12.3 Líkingin á við þann sið á laufskálahátíð að ausa vatni og vígja það. Vatn var lífgjafi.
úr lindum hjálpræðisins.
4Á þeim degi munuð þér segja:
Lofið Drottin, ákallið nafn hans.
Gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna.
Hafið í minnum að háleitt er nafn hans.
5Lofsyngið Drottni því að dásemdarverk hefur hann gert,
þau verða þekkt um alla jörð.
6Fagnið og gleðjist, þér sem búið á Síon,
því að Hinn heilagi Ísraels er mikill á meðal yðar.

Currently Selected:

Jesaja 12: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in