Fyrra Tímóteusarbréf 5
5
Fyrirmæli
1Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega heldur uppörva hann sem föður, yngri menn sem bræður, 2aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur með allri siðsemi.
3Heiðra ekkjur sem í raun og veru eru ekkjur. 4En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum því að það er Guði þóknanlegt.
5Sú sem er ekkja í raun og veru og á engan að festir von sína á Guð og ákallar hann stöðugt og biður nótt og dag. 6En hin bílífa er lifandi dauð.
7Brýn þetta fyrir þeim til þess að þær sæti engu ámæli.
8En ef einhver sér ekki fyrir skylduliði sínu, sérstaklega sínum nánustu, þá hefur hún afneitað trúnni og er verri en vantrúuð.
9Ekkja sé ekki tekin á skrá yfir ekkjur nema hún sé orðin fullra sextíu ára, eingift 10og lofsamlega kunn að góðum verkum. Hún verður að hafa fóstrað börn, sýnt gestrisni, þvegið fætur heilagra, hjálpað bágstöddum og lagt stund á hvert gott verk.
11En tak ekki ungar ekkjur á skrá. Þegar hvatir véla þær frá Kristi vilja þær giftast 12og gerast þá sekar um að brjóta sitt fyrra heit. 13Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi, ekki einungis iðjulausar heldur einnig málugar og hlutsamar og tala það sem eigi ber að tala.
14Ég vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi andstæðingunum ekkert tilefni til ills umtals. 15Nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan.
16Ef trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá skal hún sjá fyrir þeim, og eigi hafi söfnuðurinn þyngsli af því að hann þarf að geta hjálpað þeim sem eru ekkjur og einstæðar.
17Öldungar þeir sem veita góða forstöðu séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem leggja hart að sér við boðun og fræðslu. 18Því að Ritningin segir: „Þú skalt ekki múlbinda uxann er hann þreskir,“ og: „Verður er verkamaðurinn launa sinna.“
19Tak þú ekki við kæru gegn öldungi nema tveir eða þrír vottar beri.
20Ávíta brotlega í viðurvist allra, öðrum til varnaðar.
21Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla að þú gætir þessa án hleypidóms og gerir ekkert af vilfylgi.
22Ver ekki of fljótur til að vígja nokkurn mann til þjónustu. Tak eigi heldur þátt í annarra syndum og varðveit sjálfan þig hreinan.
23Ver þú ekki lengur að drekka vatn heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna sem eru svo tíð.
24Syndirnar hjá sumum mönnum blasa við áður en til dóms kemur en hjá öðrum koma þær síðar í ljós. 25Á sama hátt eru góðverkin augljós og þau sem eru það ekki munu ekki geta dulist.
Currently Selected:
Fyrra Tímóteusarbréf 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007