YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Tímóteusarbréf 4

4
Um villuanda
1Andinn segir berlega að á síðustu tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda. 2Þessu valda hræsnisfullir lygarar sem eru brennimerktir á samvisku sinni. 3Þeir banna hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu er Guð hefur skapað til þess að við henni sé tekið með þakklæti af trúuðum mönnum er þekkja sannleikann. 4Allt sem Guð hefur skapað er gott og engu ber frá sér að kasta sé það þegið með þakklæti. 5Það helgast af orði Guðs og bæn.
Fyrirmynd trúaðra
6Með því að brýna þetta fyrir söfnuðinum#4.6 Orðrétt: bræðrunum. ert þú góður þjónn Krists Jesú og styrkist um leið af orði trúarinnar og þeim góða trúarlærdómi sem þú hefur fylgt. 7En hafna þú vanheilögum hégiljum og æf sjálfan þig í guðrækni. 8Líkamleg æfing er nytsamleg í sumu en guðræknin er til allra hluta nytsamleg og gefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.
9Það orð er satt og í alla staði þess vert að við því sé tekið. 10Þess vegna leggjum við á okkur erfiði og þreytum stríð#4.10 Annar lesháttur: þolum ákúrur. því að við höfum fest von okkar á lifanda Guð sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra.
11Bjóð þú þetta og kenn það.
12Lát engan líta smáum augum á æsku þína en ver fyrirmynd trúaðra í orði og hegðun, í kærleika, trú og hreinlífi.
13Ver kostgæfinn við að lesa upp úr Ritningunni, uppörva og kenna þangað til ég kem.
14Vanræktu ekki náðargjöfina sem þér var gefin að tilvísun spámanna og með handayfirlagningu öldunganna. 15Stunda þetta, ver allur í þessu til þess að framför þín sé öllum augljós.
16Haf gát á sjálfum þér og fræðslunni. Ver stöðugur við þetta. Þegar þú gerir það muntu bæði frelsa sjálfan þig og áheyrendur þína.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

Video for Fyrra Tímóteusarbréf 4