YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Pétursbréf 3

3
Eiginkonur og eiginmenn
1Eins skuluð þið, eiginkonur, vera eftirlátar eiginmönnum ykkar til þess að jafnvel þeir sem vilja ekki hlýða orðinu geti unnist orðalaust við hegðun kvenna sinna 2þegar þeir sjá ykkar grandvöru og skírlífu hegðun. 3Skart ykkar sé ekki ytra skraut, hárgreiðslur, gullskraut og viðhafnarbúningur 4heldur hinn huldi maður hjartans, búinn óforgengilegri fegurð hógværs og hljóðláts anda. Þetta er dýrmætt í augum Guðs. 5Þannig skreyttu sig einnig forðum hinar helgu konur er settu von sína til Guðs. Þær voru eiginmönnum sínum eftirlátar 6eins og Sara hlýddi Abraham og kallaði hann herra. Og þið eruð orðnar börn hennar er þið hegðið ykkur vel og látið ekkert skelfa ykkur.
7Eins skuluð þið, eiginmenn, sýna eiginkonum ykkar nærgætni sem hinum veikari og virða þær mikils því að þær munu erfa með ykkur náðina og lífið. Þá hindrast bænir ykkar ekki.
Óttaleysi í fylgd Krists
8Að lokum, verið öll samhuga, hluttekningarsöm og elskið hvert annað, verið miskunnsöm, auðmjúk. 9Gjaldið ekki illt með illu eða illmæli fyrir illmæli heldur þvert á móti blessið því að þið eruð til þess kölluð að öðlast blessunina.
10Sá sem vill elska lífið
og sjá góða daga
haldi tungu sinni frá vondu
og vörum sínum frá svikatali.
11Hann sneiði hjá illu og geri gott,
ástundi frið og keppi eftir honum.
12Því að augu Drottins hvíla á réttlátum
og eyru hans hneigjast að bænum þeirra.
En auglit Drottins er gegn þeim sem illt gera.
13Hver er sá er mun gera ykkur illt ef þið kappkostið það sem er gott? 14En þótt þið skylduð líða illt fyrir að gera það sem er rétt, þá eruð þið sæl. Hræðist eigi og skelfist eigi fyrir neinum. 15En helgið Krist sem Drottin í hjörtum ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara hverjum manni sem krefst raka fyrir voninni sem þið eigið. 16En gerið það með hógværð og virðingu og hafið góða samvisku til þess að þeir sem níða góða hegðun ykkar sem kristinna manna verði sér til skammar vegna þess sem þeir mæla gegn ykkur. 17Ef það er vilji Guðs að þið líðið þá er það betra að þið líðið fyrir að breyta vel en fyrir að breyta illa.
18Kristur dó#3.18 Annar lesháttur: leið. fyrir syndir í eitt skipti fyrir öll, réttlátur fyrir rangláta, til þess að geta leitt ykkur til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til en lifandi ger í anda. 19Þannig steig hann niður til andanna í varðhaldi og prédikaði fyrir þeim. 20Þeir höfðu óhlýðnast fyrrum, á dögum Nóa, þegar Guð sýndi biðlund og beið meðan örkin var í smíðum. Í henni frelsuðust fáeinar − það er átta − sálir í vatni. 21Þetta er fyrirmyndan skírnarinnar sem nú frelsar ykkur. Hún er ekki hreinsun óhreininda á líkamanum heldur bæn til Guðs um góða samvisku fyrir upprisu Jesú Krists 22sem steig upp til himna, situr Guði á hægri hönd, og englar, völd og kraftar eru undir hann lagðir.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in