1
Fyrsta Mósebók 39:2
Biblían (2007)
En Drottinn var með Jósef svo að hann varð lánsamur. Hann dvaldist í húsi hins egypska húsbónda síns.
Compare
Explore Fyrsta Mósebók 39:2
2
Fyrsta Mósebók 39:6
Pótífar fól Jósef til umráða allar eigur sínar og lét sig ekki varða um annað en matinn sem hann neytti. Jósef var vel vaxinn og fríður sýnum.
Explore Fyrsta Mósebók 39:6
3
Fyrsta Mósebók 39:22
sem setti Jósef yfir alla hina fangana og gerði hann ábyrgan fyrir allri vinnu í fangelsinu.
Explore Fyrsta Mósebók 39:22
4
Fyrsta Mósebók 39:20-21
Lét húsbóndinn taka Jósef og setja hann í fangelsið þar sem fangar konungs voru geymdir. Þar var hann hafður í haldi. En Drottinn var með Jósef, auðsýndi honum miskunn og lét hann finna náð í augum fangelsisstjórans
Explore Fyrsta Mósebók 39:20-21
5
Fyrsta Mósebók 39:7-9
Þar kom að kona húsbónda hans renndi hýru auga til hans og sagði: „Leggstu með mér!“ Jósef færðist undan og sagði við hana: „Húsbóndi minn lætur sig ekki varða um neitt í húsinu undir minni stjórn og hefur trúað mér fyrir öllum eigum sínum. Hann hefur ekki meira vald í þessu húsi en ég og hann neitar mér ekki um neitt nema þig vegna þess að þú ert kona hans. Hvers vegna skyldi ég þá aðhafast svo illt og syndga á móti Guði?“
Explore Fyrsta Mósebók 39:7-9
6
Fyrsta Mósebók 39:11-12
Dag einn er hann gekk til vinnu sinnar inn í húsið og enginn heimilismanna var þar inni greip hún í skikkju hans og sagði: „Leggstu með mér!“ Hann skildi skikkjuna eftir í hendi hennar og lagði á flótta út.
Explore Fyrsta Mósebók 39:11-12
Home
Bible
Plans
Videos