YouVersion लोगो
खोज आइकन

Markúsarguðspjall 2

2
Syndir fyrirgefnar
1Nokkrum dögum síðar kom Jesús aftur til Kapernaúm. Þegar fréttist að hann væri heima 2söfnuðust þar svo margir að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og Jesús flutti þeim orðið. 3Þá er komið með lama mann og báru fjórir. 4Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna sem hinn lami lá í. 5Þá er Jesús sér trú þeirra segir hann við lama manninn: „Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“
6Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu með sjálfum sér: 7„Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“
8Samstundis skynjaði Jesús að þeir hugsuðu þannig með sér og hann sagði við þá: „Hví hugsið þið slíkt í hjörtum ykkar? 9Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: Syndir þínar eru fyrirgefnar, eða segja: Statt upp, tak rekkju þína og gakk? 10En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu, 11þá segi ég ykkur,“ − og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín.“
12Maðurinn stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: „Aldrei áður höfum við þvílíkt séð.“
Fylg þú mér
13Aftur fór Jesús út og gekk með fram vatninu. Allur mannfjöldinn kom til hans og hann kenndi þeim. 14Og er hann gekk þar sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni og Jesús segir við hann: „Fylg þú mér!“ Og hann stóð upp og fylgdi honum.
15Svo bar við að Jesús sat að borði#2.15 Orðrétt: lá til borðs. Á hátíðum og í veislum lágu menn við máltíðir meðal Gyðinga eins og siður var hjá Grikkjum og Rómverjum. í húsi hans. Margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans en margir fylgdu honum. 16Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu að hann samneytti tollheimtumönnum og bersyndugum, sögðu þá við lærisveina hans: „Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.“
17Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara.“
Meðan brúðguminn er hjá þeim
18Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: „Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea en þínir lærisveinar fasta ekki?“
19Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir fastað meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund sem brúðguminn er hjá þeim geta þeir ekki fastað. 20En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim degi.
21Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa. 22Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi því þá sprengir vínið belgina og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.“
Drottinn hvíldardagsins
23Svo bar við að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni. 24Farísearnir sögðu þá við hann: „Lít á, hví gera þeir það sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?“
25Jesús svaraði þeim: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð gerði er honum lá á þegar hann hungraði og menn hans? 26Hann fór inn í Guðs hús þegar Abíatar var æðsti prestur og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.“
27Og Jesús sagði við þá: „Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins. 28Því er Mannssonurinn einnig Drottinn hvíldardagsins.“

अहिले सेलेक्ट गरिएको:

Markúsarguðspjall 2: BIBLIAN07

हाइलाइट

शेयर गर्नुहोस्

कपी गर्नुहोस्

None

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्